Færsluflokkur: Dægurmál

„Nú fær þjóðin valdið og ábyrgðina í sínar hendur,"

Hárrétt ákvörðun manns sem kynnir sér málefni til hlítar og hlustar á þjóð sína.

 Hann lifi !

Góðar stundir


mbl.is Staðfestir ekki Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósmekklegar yfirlýsingar

stjórnmálafræðinga með keyptar skoðanir. Er ekki eðlilegt að menn hugsi sig um og noti þann frest sem til þess fæst. Aðrir hefðu betur gert slíkt hið sama í stað þess að vaða áfram fyrirhyggjulaust.

Góðar stundir


mbl.is Þjóðin bíður ákvörðunar forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konan er þingmaður og lýgur ekki

hún sýnir auðvitað tölvupóstinn svo menn geti séð þetta svar á hvitu.

Góðar stundir


mbl.is Kannast ekki við fjöldapóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Listin að leggja í bireiðastæði og nýstárlegt hjálpartæki

 

trouble-parking-480.jpg 

 

Að leggja bifreið í stæði  er kannski ekki kjarneðlisfræði en það vefst þó stundum  fyrir fólki. Því hafa vísindamenn nú afleitt hagnýta stærðfræðiformúlu  sem nota má og gefur hún góða raun. Alltaf.

 

Nú eru margar bifreiðar  búnar alls konar skynjurum sem væla þegar maður er of nálægt bifreið fyrir framan eða aftan en þrátt fyrir það geta þessi hljóð, sérstaklega ef maður er að flýta sér, aukið á streituna í stað þess að vera til hægðarauka. Enn flóknari kerfi hafa myndavélar sem eru líkast því að vera  staddur í flughermi og það allra nýjasta eru kerfi sem ekki þurfa aðstoð bílstjórans  við að leggja í stæði.

 

Hvað gerir maður þá ef bifreiðin sem maður á er Golf frá 1995 ? Keyptur fyrir útrás og greiddurr að fullu, en án

teljandi þæginda.

Jú, notar gamaldags heiðarlega stærðfræði ! Professor Simon Blackburn við University of London´s Royal Holloway Collage hefur afleitt stærðfræðijöfnu sem gerir þetta að barnaleik.

 

Hann komst að því að 57 %  bílstjóra skorti sjálfstraust þegar kom að því að leggja bifreið í stæði. Einnig að 32% þeirra tóku fremur á sig krók , eða völdu dýrara stæði,  frekar en að freista þess að leggja í þröngt bifreiðastæði og tefla þannig í tvísýnu og hljóta  af rispað eða beyglað ökutæki . Og fá svo skammir heima eftirá .....

 

 

GetFile.ashx.jpg

 

 

En hversu rökrétt sem jafnan kann að virðast gæti hún reynst sumum erfið því ekki er beinlínis verið að reikna

1+1 =     eða hvað ?

Enn fremur þarf að vita beygjuradíus, fjarlægð milli öxla. Einnig þarf að vita fjarlægð frá framhjólamiðju að framstuðara og  breidd bifreiðarinnar  sem maður leggur aftan við. Þessi útreikningur gefur þér síðan þá stærð

bílastæðisins sem þarf til að bakka  klakklaust inn í bílastæðið.

 

Þannig getur jafna Blackburns hjálpað þeim sem hafa lítið sjálfstraust eða eru að flýta sér , ja.. eða a.m.k. þar til einhver reiknar vitlaust.......

 

Góðar stundir



Gamla klíkan rís uppvakningar sveima

Betra hefði verið að fá Guðna Ágústsson aftur.

Þessi Hrólfur Halldórspiltur er eins aðrir sem hafa nærst við brjóst Halldórs Ásgrímssonar, ekki hæfur til að ná einhverju fylgi Framsóknarflokknum til handa. Ég aðhyllist Framsóknarstefnuna  en hef ímúgust á þeim mönnum innan Framsóknarflokksins sem hafa misnotað vald sitt sér og tengdum til framdráttar. Farið ránshendi um landið, logið árum saman að lýðnum, hafnir yfir lög og rétt . Svo enda þeir stikkfrí í utanríkisþjónustunni sem umboðsmenn lands og þjóðar. Sendiherrar andskotans. Menn sem hafa skaðað land og þjóð óbætanlega.  

Hof og musteri nepotismans höfðu þeir í hávegum og tilbáðu.

Og gera enn. 

Stofna þarf Ný-Framsókn. Með Guðna Ágústssyni.Án gömlu kláranna sem Halldór tamdi og reið (til andskotas sumum, öðrum til heljar)

Góðar stundir


mbl.is Nýr framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loftslagsbreytingarnar,stærsta mál 21.aldar

en höfðinu stungið í sandinn eins og þetta komi okkur ekki við. Ábyrgðin er alfarið á höndum iðnríkjanna sem kaupa mengunarkvóta dýrum verði eða gera eins og þeim sýnist. Þvílíkt ábyrgðaleysi og skammsýni. Komandi kynslóðir kynnast etv aldrei hvernig er að anda að sér hreinu lofti, borða ómengaða fæðu, geta farið út í guðs græna náttúruna, sjá óspillt hálendi fossa og vötn. Allt það sem við teljum sjálfsagðan hlut í dag. Orkulindirnar eru senn á þrotum og staldra þarf við og huga að því hvað við, þú og ég, getum gert.

Góðar stundir 

 


mbl.is Margir hafa áhyggjur af loftslagsbreytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðsluáróður

Það stoðar ei að hræðast. Það er diplómatísk deila milli Íslands og tvíeykisins GB-NE.
Ekki verðum við hernumin á ný. Deilumál má leysa en ekki einhliða. Yfirgangur og hroki dugar ekki og
getur ekki fallið undir diplómatí.
mbl.is Gæti endurvakið diplómatíska deilu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti vor er síðasta haldreipið

og það eina sem kemur í veg fyrir að gerspilltir valdhafar grafi undan hinu sanna lýðveldi. Það er í umferð leiðinda tal um Forseta Íslands og konu hans og það hryggir mig því hann hefur af alúð helgað sig embættinu , rækt sín störf af heiðarleik og ávallt borið hag þjóðar og lands fyrir brjósti .
Nýársávarp Forseta Íslands er til vitnis um það. Sómi Íslands, skjöldur þess og sverð.

Góðar stundir


mbl.is Vilji þjóðarinnar hornsteinninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfengi, pillur, áfengi og rugl

Við hverju er að búast, maðurinn er veikur og hefur verið lengi. Bendi á AA og NA.
Áfengissýki gerir ekki mannamun, einkar demókratískur sjúkdómur og sá eini sem telur sjúklingnum trú um að hann sé alls ekki haldinn þessum kvilla. Merkilegt.
mbl.is Neyðarlínusímtal eiginkonu Sheen birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú eru okkar viðmið Nígería

Þetta er frábært, aðeins Nígería er verri en Ísland. Haha !
Vondur draumur, vondir landsfeður, vont veganesti inn í nýja árið.
Góðar stundir, og farið varlega með eldinn.
mbl.is Krónan: 7% veiking á árinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband