Gamla klíkan rís uppvakningar sveima

Betra hefði verið að fá Guðna Ágústsson aftur.

Þessi Hrólfur Halldórspiltur er eins aðrir sem hafa nærst við brjóst Halldórs Ásgrímssonar, ekki hæfur til að ná einhverju fylgi Framsóknarflokknum til handa. Ég aðhyllist Framsóknarstefnuna  en hef ímúgust á þeim mönnum innan Framsóknarflokksins sem hafa misnotað vald sitt sér og tengdum til framdráttar. Farið ránshendi um landið, logið árum saman að lýðnum, hafnir yfir lög og rétt . Svo enda þeir stikkfrí í utanríkisþjónustunni sem umboðsmenn lands og þjóðar. Sendiherrar andskotans. Menn sem hafa skaðað land og þjóð óbætanlega.  

Hof og musteri nepotismans höfðu þeir í hávegum og tilbáðu.

Og gera enn. 

Stofna þarf Ný-Framsókn. Með Guðna Ágústssyni.Án gömlu kláranna sem Halldór tamdi og reið (til andskotas sumum, öðrum til heljar)

Góðar stundir


mbl.is Nýr framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband