Færsluflokkur: Dægurmál
31.12.2009 | 09:06
Ánægjuleg frétt
Til hamingju með það.
Góðar stundir
![]() |
Geir Gunnlaugsson skipaður landlæknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2009 | 23:53
33 asnar í meirihluta helfararstjórninni kollvarpa þjóð, skrattinn hlær
Asni klyfjaður gulli kemur víða við sögu í heimsbókmenntunum.Einnig Trójuhestar.
Sorglegt að heyra og sjá þetta frumvarp keyrt í gegn og hryllilegt að sjá andlitið á Steingrími J. að atkvæðatalningu lokinni. Það ummyndaðist í fólskulegt háðungsglott , illa dulin sjálfsánægjan skein út úr svipnum. Níðingsverk hefur hér verið unnið og á ódrengilegan hátt. Vilji þjóðarinnar virtur að vettugi sem og allar breytingatillögur þ.m.t. þjóðaratkvæðagreiðsla. En islendingar eru langræknir og minnisgóðir. Þetta mál mun draga dilk á eftir sér lengi og óvíst að þessir 33 þingmenn geti sofið rótt það sem eftir er ævinnar.
Nú bíður úrskurður forseta vors Ólafs Ragnar Grímssonar .
Hvað gerir hann ?
Góðar stundir og Guðs blessun fylgi yður á nýju ári.
![]() |
Alþingi samþykkti Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.12.2009 | 12:21
Íslendingar eru ekki sáttir
Vona að sem flestir mæti og mótmæli.
Góðar stundir
![]() |
Rauð blys loga á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2009 | 12:12
Útrás blekkinganna og góðærið sem hvarf
Churchill sagði í einni ræðu sinni: Sjaldan haf eins fáir menn gert jafn mikið fyrir svo marga eins og flugsveitir RAF hafa gert.
Sama er upp á teningnum hér nema með öfugum formerkjum: Sjaldan hafa eins fáir menn unnið svo mörgum tjón. Skaðað land og þjóð. Hneppt almenning í skuldafjötra og skilið eftir sig upplausnar- og uppgjafarástand.
Ríkisstjórninni (helfararstjórn Jóhönnu og Steingríms) er sek. Sek um blekkingar, lygar, ómerkilegheit og ekki vandanum vaxin. Ekkert liggur uppi á borðum eins og svo digurbarkalega var hrópað áður, lofuð glæsileg niðurstaða er engin heldur neisuleg og þeim til minnkunar.
Ekki hefur nokkuð gerst í þá átt til að hreinsa til í bankkerfinu eða á alþingi. Gerspilltir stjórnmálamenn vada uppi, síljúgandi og svíkjandi allt og alla. Ríghaldandi í stólana sína. Völd og aftur völd er allt sem sóst er eftir. En það þarf vit og skynsemi til að fara með valdsumboð.
Ástand almennings er afleiðing skuldasöfnunar við fjármálastofnanir, sumar ríkisreknar, sem nú hafa tangarhald á fólki , hafa valdið en lúta engu eftirliti. Stjórnar þú skuldastöðunni þá stjórnar þú öllu. Hefur líf fólks og líðan í hendi þér. Afhverju hafa gyðingar verið hataðir gegnum tíðina ? Jú, þeir tóku rentu (bannað í öðrum trúarbrögðum), vexti af lánsfé .Lánþegar gátu þurft að endurgreiða fjórfalda lánsupphæð tilbaka. Nákvæmlega þetta gera bankarnir. Haga sér sem ríki í ríkinu þó svo að þeir eru ríkisreknir. Hvað gerir helfararstjórnin? NADA.
Vei þeim sem ekki geta losað sig undan skuldaokinu, okurvöxtunum og verðtryggingunni.
Góðar stundir
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2009 | 11:49
Loftlagsráðstefnan CPH
Hér er vaðið áfram í stórframkvæmdir s.s. virkjanir, álbræðslurog járnblendi . Stóriðju sem skapar fleiri vandamál en hún leysir. Það er eins og með stjórnmálamenn; þeir leysa engan vanda, þeir eru vandinn.
Það vantar framtíðarsýn og -skipulag komandi kynslóðum til handa.Hlýnun jarðar og loftslagsbreytingarnar eru ekki málefni sem þarf að skopast að. Vandamálið er að fólk skilur ekki hvað tölurnar segja okkur. Losun eiturefna út í andrúmsloftið,höfin, ár og læki er að drepa allt líf á jörðinni og mun hraðar en þið haldið. Einfaldur reikningur: 5% stöðug aukning losunar tvöfaldast á 14 árum og tvöfaldast svo koll af kolli á 14 ára fresti. Eftir fimm tvöföldunartímabil er staðan 1000X verri . Við erum að tala um 20 til 30 ár, kannske minna sem við höfum til að snúa þessarri þróun við. Rótin að þessari plágu er hin gífurlega fólksfjölgun í heiminum. Iðnaðaríkin eru verst. Td er fjölguníbúa USA meiri en í verstu þróunarlöndum. Að sama skapi er olíunotkun mestí heiminum þar, sama gildir um kol og raforku. Einn bandaríkjamaður/kani eyðir 30 sinnum meira af auðlindum jarðar en íbúi í þróunarlandiog það á öllum sviðum. Því er ekki nema rétt að iðnvædd ríki dragi saman seglin á öllum sviðum orkunotkunar og sér í lagi hvað varðar fólksfjölgun. Við erum vandamálið og berum ábyrgð á því hvernig komið er og verðum þvi að leysa það eftir bestu getu ef við eigum að lifa af þessar hörmungar sem blasa við.
Góðar stundir
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2009 | 17:49
Smekkleysa og ranglæti
Ávallt er hægt að sætta slík mál ef málefnalega er staðið að hlutunum.
Hér er vinsælum lækni bolað burtu með offorsi og tími friðar og hátíðahalda valinn til að auka enn á vanlíðan sem óhjákvæmilega fylgir slíkum deilum. Bara þetta gefur ábendingu um alvarlegt óhæfi forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Manninn skortir kurteisi og almenna samskiptahæfileika og HS á samúð mína alla í þessu máli.
Góðar stundir
![]() |
Yfirlækni sagt upp störfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2009 | 17:40
Yndislegir karlar

![]() |
Reykvískar kindur í ástarbríma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2009 | 11:14
Þingmaður: Sjaldan verið eins illilega logið að þjóð og þingi eins og í Icesave-málinu
Þingmaður: Sjaldan verið eins illilega logið að þjóð og þingi eins og í Icesave-málinu
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að sjaldan hafi verið eins mikil leynihyggja og eins illilega logið að þjóð og þingi eins og í kringum Icesave-málið. Hún segir þingið haft af háði og spotti af framkvæmdavaldinu.
Þriðja og síðasta umræða um Icesave-málið hófst á þingi í gær og stóð þingfundur fram eftir kvöldi og voru fjölmargir á mælendaskrá þegar fundi var slitið undir klukkan 23:00. Samkomulag er um að gengið verði ti atkvæðagreiðslu á morgun.
Birgitta segir Icesave-málið blekkingu á blekkingu ofan.
Sjaldan hefur verið eins mikil leynihyggja og eins illilega logið að þjóð og þingi eins og í kringum þetta Icesave mál. Þingið er haft af háði og spotti af framkvæmdavaldinu. Fjármálaráðherra skipar að engu verði breytt þegar þetta var tekið inn á þing og hver er svo niðurstaða meirihluta þingsins. Breytum engu!
Hún segir að engu eigi að breyta af hálfu stjórnarmeirihlutans þrátt fyrir að upplýsingar hafi komið fram sem sýni að Ísland geti ekki staðið undir skuldbindingum sínum án þess að samfélagið beri verulegan skaða af.
Þekki svo marga sem ætla að flytja burt ef þetta verður samþykkt á miðvikudaginn. Þetta sjö ára skjól SJS er líka blekking því vextirnir eru himinháir og þurfa að borgast strax.
Er þetta ekki það sem alltaf hefur verið lesið milli línanna. Birgitta á heiður skilið fyrir að segja þetta blátt áfram á mannamáli.
Góðar stundir
![]() |
Styðja frumvarp um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.12.2009 | 13:02
Fyrningarfrestur þrjú ár
Þetta er ansi stuttur tími. Hvaða þingmenn eru þetta ? Hrunið nær aftur til 2002 amk. Þá þegar skrifuðu breskir blaðamenn um vafasöm viðskipti með Landsbanka og við Björgólfsfeðga; studd af ákveðnum flokki og mönnum innan hans. Á að treysta því að þingmenn rannsaki flokksbræður sína ohlutdrægt ?
vaða
![]() |
Fyrningarfrestur þrjú ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2009 | 10:01
Hvað með íslendinga
Bjórvambir og skyndibitavambir finnas líka á fróni og ekki einfalt að komast í aðgerð.
Þar að auki lífslangt prógram eftir það,
Ekki éta fitu-þá færðu skitu o.s.frv.
![]() |
Mikil fjölgun offituaðgerða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)