Færsluflokkur: Dægurmál
18.4.2010 | 17:16
Flokkurinn er eins og mygluskán
Innihaldið er löngu skemmt og ekki þýðir bara að skafa ysta myglulagið af, það kemur snarlega aftur.Þannig er nú komið fyrir Sjálfstæðisflokknum að hann getur ekki komið með neinn sem á flekklausa fortíð . Formaðurinn lifir í draumaheimi og telur SIG flekklausan en heggur varaformann sinn í bakið og kastar fyrir úlfana. Farið hefur fé betra. Dólgur kemur í dólgs stað. Væri ekki bara best að gera tugthúsliminn að formanni, hann kemur þó ýmsu í verk og er ærureistur og hreinn. Skítt með fortíðina siðferði og samvisku. -Nei, þveröfugt við orð Bjarna vafnings, þá er stefna flokksins ein rjúkandi rúst. Öskustó sem þarf að tæma og hreinsa.
![]() |
Þrír nýir þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.4.2010 | 19:26
Hið eina rétta, Þorgerður kúlulánadrottning, en betra að það hefði verið
vegna kjósenda en ekki eins og segir :" Ég finn að trúverðugleiki minn sem stjórnmálamaður hefur skaðast og ykkar vegna, flokksins míns vegna þá tek ég þessa ákvörðun. Það er aðeins hugsað um Flokkinn og trúverðugleika hans sem enginn er í dag. Flokkurinn hefur ekki traust fólks lengur, hann er afhjúpaður sem bófagengi og forsprakkarnir og uppvísir að óheiðarleik svo meira sé ekki sagt. Í þetta sinn þýðir ekki að treysta á að þjóðin hafi gullfiskaminni og ´tla sér að koma aftur eftir korter -Nei , nú ríkir sjaldséð heift,langrækni og hefnigirni í garð óheiðarlegra stjórnmálamanna og auðmanna.
En ég geri skýran greinarmun á því að fjalla um þessi mál annars vegar og þann verknað að sitja um hús og híbýli (svo ekki séu nefndar fjölskyldur) þessa fólks sem hrópandi skríll. Slíkt athæfi er andstyggilegt og engum til sóma .
Enginn á það skilið að vera ofsóttur af götuskríl sem safnast kringum hús þolnanda því friðhelgi einkalífsins ber að virða , enda viljum við öll njóta þess, eða hvat.
![]() |
Þorgerður stígur til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.4.2010 | 08:47
Hvalveiðar eru tímaskekkja
Flest náttúruverndarsjónarmið leggjast á sveifina með hvalverndarsinnum.
Að veiða þessi dýr til útflutnings tel ég rangt. Ef við erum að tala um veiðar til manneldis fyrir íslendinga þá tel ég ekki að hægt sé að amast við því, enda þarf ekki margar skepnur til að fullnægja þeirri þörf.
Frumstæðar þjóðir hafa yfirleitt fengið úthlutað kvóta sem sér samfélaginu fyrir hvalkjöti.
Að lokum ætti ekki að kalla þetta vísindaveiðar. Einungis veiðar/hvalveiðar.
Munum að vissar hvaltegundir eru meðal allra stærstu, þyngstu og langlífustu
spendýrum jarðar. Sumir ná yfir 130 ára aldri.
![]() |
Hverfandi líkur á samkomulagi um hvalveiðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2010 | 17:00
Þetta kalla ég fínar fréttir !
Vill einangra sjúklinginn og drepa.
Ég samgleðst ykkur feðgum og vona allt fari vel.
![]() |
Pabbi í meðferð og á batavegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2010 | 14:55
Það létu allir glepjast þegar allt lék í lyndi. Þú líka !
-Nema þeir sem voru valdar að hruninu.
Forsetinn sinnti sínu starfi af alúð og meira til. Kanski of vel. En það finnst mér verulega ámælisvert að smána og vanvirða mann og embætti sem hefur haldið nafni Íslands á lofti og stutt við íslenskan iðnað og útflutning . Það hafa allir forverar hanseinnig gert en í mismiklum mæli þó.
Forsetaembættið er einnig síðasta hálmstráið við umdeilar kranalagasetningar, sérpantaðar til handa gæðingum flokkanna og nánustu hirð þeirra að viðskiptajöfrunum ógleymdum. Þetta hðfum við sannreynt. Þá stóð hann við sín orð og hélt stillingu sinni meðan aðrir biluðu á taugum,á geði og að rökfestu.
Það eina sem mér finnst ámælisvert er að hann þáði boð um flug í einkaþotum meðan leikurinn stóð sem hæst og það að auðmenn hafa misnotað hans nafn og nafnbót sér til framdráttar.
Í ljósi liðinna atburða verða starfshættir embættisins endurskoðaðir og er það vel.
Gerir Alþingi slíkt hið sama ??
Mér finnst hann hafi staðið af sér flest áhlaup, launsátur og baktal.
Finnst mér reyndar leitt hve margir bloggarar eru orðljótir í hans garð. Það er ómaklegt.
Vafalítið er það gremja yfir að sjálfir hafa verið plataðir og tekið þátt í leiknum .
Sjálfur er ég hundfúll yfir því.
![]() |
Ólafur Ragnar svarar fyrir sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2010 | 13:42
Þessi þingkona er sjálfdæmd vegna ummæla sinna
![]() |
Ofbauð viðbrögð forseta Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2010 | 10:48
Að skara fram úr er eitt, annað að skara eld að eigin köku
![]() |
Fékk heimild til að flytja hlutabréf í eignarhaldsfélag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2010 | 08:49
Stjórnendur endurskoðunarfyrirtækjanna stóru
Það er skelfilegt hvað mönnum gengur illa að koma heiðarlega fram, segja satt, vera ábyrgir gjörða sinna.
![]() |
Verðmæti breyttist mikið við fall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2010 | 17:50
Hreinsanir og hreint borð , spilin stokkuð og gefið á ný
Ögmundur hefur á réttu að standa, hann talar beint til fólks þannig að tekið er eftir , hann sykurhjúpar ekki það sem óþægilegt, hann þorir þegar aðrir þegja þunnu hljóði, hann er ábyrgur og segir af sér þegar aðrir ríghalda í stólana sína og fara hvergi og þar fram eftir götunum.Hann er stjórnmálamaður.
Við þurfum fleiri svona stjórnmálamenn. -Já, þetta er stjórnmálamaður og ekki aumur hagsmunapotari gjörspilltur af öllum hégóma veraldar og innmúraður í kerfinu, bákninu sem aðrir eiga ekki innsýn í.
Það er ekki hægt að búa í þjóðfélagi sem gengur fyrir mútum,nepótisma,stöðnuðum stjórnmálaflokkum, rotnu réttarkerfi og þar sem hinir veikburða eru sífellt látnir axla byrðarnar og borga brúsann.
![]() |
Í skjóli leyndar þrífst spillingin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2010 | 15:09
Þörfin meiri en tölurnar gefa í skyn
A bak við hvern þann sem leitar aðstoðar eru 4-5 sem neyðin hefur ekki enn sligað og einungis timaspursmál hvenær þeir bætist í lið hinna þurfandi.
Það hefur alltaf þótt skammarlegt að þiggja ölmusu en veruleikinn er sá að margt dugandi fólk getur ekki lengur séð sér farborða sökum okurlánastefnu íslensku ríkisbankanna ,vísitölutryggingu lána og hárra vaxta sem er alveg einstakt meðal siðaðra þjóða.Menn rembast í vonlausri baráttu við að borga af lánunum og eiga svo ekki til hnífs og skeiðar í lok mánaðarins ,eða öfugt og verða því að leita til hjálparstofnana. Eða flytja af landi brott og byrja upp á nýtt
-Svo eru menn sem segja þetta kerfi misnotað !Það held ég fjarstæðu og ef svo er mun sá einstaklingur vera það sjúkur af nísku að hann tímir ekki að kaupa mat og
er því hjálparþurfi eins og aðrir.Ég þakka G--i fyrir að til eru einstaklingar sem geta og vilja vinna sem sjálfboðaliðar við að hjálpa þurfandi fjölskyldum og einstaklingum. Það eru hetjur dagsins sem vinna sín störf af mannkærleika og ætlast ekki til þess að umbun eða frami komi á móti (öfugt við auðmenn NB )
Stærsta hjálpin sem hægt er að veita fólki núna er að afskrifa lán að fullu eða að hluta svo menn komist á réttan kjöl á ný, afnema verðtrygginguna, lækka vexti og afnema tengingu krónu við aðra gjaldmiðla. Allt þetta er hægt að gera ef samstaða og vilji er fyrir hendi hjá stjórnvöldum.
Síðan getur fólk borgað af sínum lánum án þess að þræla myrkranna á milli og fætt sig og klætt án þess að bera kvíðboga fyrir morgundeginum.
Efnahagslegt óöryggi er mannskemmandi. Þegar það hendir heila þjóð eru það hamfarir og þá þýðir ekki að bjóða upp á smáskammtalækningar.
Góðar stundir
![]() |
Fjallað um íslenska fátækt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)