29.5.2010 | 19:48
Læknar
![]() |
Opna sem flesta samninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2010 | 19:45
Sumum þarf að telja hughvarf
Hún fer auðmýkt og sneypt.
![]() |
Spjótin staðið um of á Samfylkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2010 | 15:56
Búlandsvirkjun ? Hvað svo...
Fyrirtækjaruglið, kennitölurnar mörgu, félag í eigu...blabla eða dótturfyritæki er byrjað á nýjan leik. Stjórnvöld eru alltaf of sein (vísvitandi) og sennilega í samkrulli við bófana á brunaútsölu íslenskra auðlinda gegnum Landsvirkjun (sem átti að einkavæða fyrir slikk). Góður díll !. Allt hljómar þetta kunnuglega. Og falskt. Óraunverulegt.
Hver leyfir Búlandsvirkjun og hver borgar ? Greinilegt er að ferlið hefur verið í burðarliðnum lengi. Vatnsréttindi hafa verið keypt af bændum ("Félagið hefur samið við flesta vatnsréttarhafa á svæðinu og bíður átekta") og notað rannsóknargögn LV og samninga þeirra við vatnsrétthafa.
"Landsvirkjun hafði um nokkurt skeið unnið að rannsóknum vegna hennar, en féll frá áformum sínum um að reisa virkjunina. Íslensk orkuvirkjun tók þá við keflinu, keypti rannsóknargögn Landsvirkjunar og réðst í samninga við vatnsréttarhafa og landeigendur. Fyrirtækið stofnaði svo félagið Suðurorku í félagi við HS Orku, sem er nær alfarið í eigu Magma Energy."
Öll málsmeðferð er forkastanleg. Allt ferlið er hulið manna sjónum fram á síðasta dag. Nú þegar er búið að stofna þrjú undirfyrirtæki svo hægt sé að færa tap og gróða milli þeirra , tæma þau og setja í þrot . Þessa samninga þarf að ógilda. Það er óverjandi að ráðstafa orku á þennan hátt með langtíma leigusamningum til erlendra aðila. Slíkt átti aldrei að gerast.
Svipað og sjálfsmorð. Endanleg lausn á tímabundnu vandamáli.
Stjórnin og snatar hennar eru búnir í íslenskri pólítík og í íslensku mannfélagi.
![]() |
Magma á helming í Búlandsvirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2010 | 20:48
Nei. Afdráttarlaust
http://www.mbl.is/frimg/5/31/531630B.jpg
Ég skil ekki Mick Jagger átrúnaðargoð. Hann hefur notað svo mikið af fíkniefnum og áfengi að hann man ekkert stundinni lengur. Þegar rita átti æviminningar hans, var minnið horfið. Það þurfti að ráða hóp einkaspæjara til að komast að því hvað hann hefði verið að gera undanfarin ár.
En þetta gæti náttúrulega orðið útflutningsvara, drýgt íslensku sauðataði .Mmhhmmm !
Bölvað eitur fyrir taugakerfið
En-til lækninga getur það hentað við krabbameinsverkjum og ógleði og lystarleysi.
Í iðnaði var jurtin notuð í tóg, úr hampi.
![]() |
Vill leyfa fíkniefni til reynslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2010 | 06:07
Vopn Stjórnmálaflokks er aðeins eitt !
Flokkurinn minn hann:
- efnir gefin loforð og er stefnu sinni trúr.Hann hefur mitt traust.Það er hans vopn og styrkur,heiðarleikinn.
- heldur uppi grunnþjónustu og tekur á sig áföll með hagræðingu í eigin rekstri.Gætir hófs í fjárfestingum og rekstri.
- telur all jafna fyrir lögum óháð fjárhagsstöðu.
- setur ekki lög sem stangast á við stjórnaskrá. Lagafrumvörp skulu grandskoðuð af Laganefnd fyrir flutning sem sker úr, áður en flutningur fer fram.
- skipar ekki í Hæstirétt Íslands sem er óháð æðsta dómstig.
- ber sérstaklega hag einstæðra foreldra,langveikra,öryrkja og aldraðra fyrir brjósti.
- selur ekki sameiginlegar auðlindir landsins.
- leigir ekki afnot auðlinda eða orku jarðar eða fallvatna til lengri tíma en 5 ára.Þá endurskoðun eða riftun samninga.
- hefur öflugt FME
- Þingmenn eru ábyrgir sem og ráðherrar hennar. Víkja af þingi tafarlaust ef brestur sést.
- Persónukjör viðhafið inn í flokkinn.
- vill sjálfstætt Ísland og þ.a.l. ekki aðild að kyrkingarbandalögum eða myntbreytingu.
Því miður hef ég ekki enn getað kosið þennan flokk, en ég veit að allt þetta er okkur í sjálfsvald sett.
![]() |
Vopnlausir stjórnmálaflokkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2010 | 19:53
Ólafur góði, gakktu í lið með herra Gnarr
Gakk í lið með Jóni Gnarr
gerðu ei hið versta
Því Þrekið sem að áður þvarr
Þorir að trúa á Besta
![]() |
Ef ég fell í kosningunum segi ég bara verði ykkur að góðu" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sveitarstjórnarkosningar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2010 | 18:41
Veðjuðu rétt
http://www.mbl.is/frimg/4/87/487202B.jpg
Norski olíusjóðurinn hoppaði á Icelandic Ponze Express hraðlestina. Þeir ferðuðust á 1.a farrými, átu gott og drukku vaxtagróðan .Hún stækkaði og tvöfaldaðist á sem svarar meðgöngutíma barns. Þeir vissu að svona myndi fara. Höfðu fylgst með af áhuga og undrast þennann vaxtarkraft en sáu svo að það var alltaf sama litla eimreiðin sem dró allt hlassið. Það gæti aldrei farið vel. Hún hlyti að sligast fyrr frekar en síðar.
NO fóru af lestinni áður en hún fórst. Góð ferð en stutt fyrir þá.
![]() |
Tók stöðu gegn Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2010 | 18:28
Björk er meðvituð hugsjónakona - íslendingur góður
Stolt af því. Reið vegna sinnuleysis hryðjuverkastjórnarinnar. Reið vegna skammsýni hennar. Að selja afnotarétt íslenskrar orku til 45 ára eða lengur. Stjórn sem ekki getur gert eina einustu áætlun skammlaust og hefur engin úrræði önnur en selja,leigja, lána og skjóta öllu á frest og framtíðar íbúa landsins.
Þessir menn hafa ekkert leyfi til að selja eða leigja þjóðareign til svona langs tíma. Það er dæmigert að sagan er ekki lesin, menn geta eikki einu sinni lært af eigin mistökum ! Frekar trúa menn á ókomna hluti, framtíðina . Eitthvað sem þeir vita akkúrat ekkert um. Þá eru allir prófessorar í Framtíðarfræðum og Væntingaráætlunargerð.
Sorglegt.
En Björk stendur fyrir sínu !
Svei þeim sem bulla um að hún borgi ekki skatta á Íslandi.
Hún vinnur ekki hér og á ekki hér heima sem stendur.
En hún styður og styrkir islendinga á margan hátt. Jafnt í orði sem á borði.
![]() |
Björk gagnrýnir kaup Magma á HS Orku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2010 | 16:28
Áfram Jón !
![]() |
Jón Gnarr: Ég er stoltur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2010 | 16:20
Síðast sopinn kostaði allt, og meira til
Helmingur slysa í umferðinni vegna ölvunar. Áfengismælir í bílnum tengdur svissnum er lausn sem svíar nota m.a. fyrir atvinnubílstjóra og þá sem hafa verið dæmdir fyrir ölvunarakstur. Mér brá nokkuð þegar ég sá strætó-vaktaskipti og bílstjórinn byrjaði á að blása í áfengismæli áður en hann ræsti vagninn ! Þetta er ágæt lausn.
Það væri ekki amalegt að hafa enn þann mannauð sem hefur látist af völdum ölvunaraksturs. Oft efnilegt, fallegt, ungt fólk í blóma lífsins. Þvílíkur missir.
![]() |
Dýr sopinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)