Fullvalda þjóð í vanda

Í reynd er Íslandi stjórnað af AGS og lánadrottnum. Ríkisstjórn ófara og hörmunga hefur ekkert til málanna að leggja. Fer barasta í "sumarleyfi" og lokar Alþingi. Væri ekki nær að þingvaramenn brúuðu bilið þennan tíma? Þegar ekkert heyrist og ekkert gerist hjá lögkosnum alþingismönnum í stjórn tekur AGS af skarið. Samt heyrist ekki píp frá stjórninni. Svo taka stofnanir eins og Seðlabankinn og FME sér það vald að gefa út tilmæli, þvert á dóm Hæstaréttar landsins. Lögreglu er att að saklausum mótmælendum við þessar stofnanir. Ráðherrar og ráðuneyti leiðbeina erlendum auðhringjum að komast yfir íslenska orku á brunaútsölu.  Hvað næst. 

En þegar spurt er frétta af þessum gjörningum neita allir sök, bláköld lygin og skætingurinn , í stað þess að upplýsa staðreyndir málsins. Hvaða þjóð á skilið að hafa slíkt fólk í forsvari fyrir sig ? Af hverju er ekki búið að úthýsa þessum amlóðum og landsölumönnum ?

Eru allir slegnir doða. 


mbl.is Leggja til hækkun fjármagnstekjuskatts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband