Færsluflokkur: Dægurmál
12.5.2010 | 13:13
Athyglisver um S og Hönnu Birnu
"Hanna Birna fráfarandi borgarstjóri Reykjavíkur leggur stolt fram ársreikning borgarinnar núna í lok kjörtímabilsins. Það er mikilvægt núna rétt fyrir kosningar að reyna að ná til borgarbúa og fá þá til að halda að allt sé í lagi með fjármál borgarinnar. Enda kemur ársreikningurinn alveg ágætlega út, sýnir styrka efnahagsstjórn og við öll sem núna tökum þátt í borgarmálunum vitum að þar er vel unnið núna, unnið í sátt og samvinnu, unnið í anda Samvinnumanna. Þannig var það því miður ekki í stjórn Reykjavíkurborgar alltaf á þessu kjörtímabili. Þegar upp er staðið og farið yfir þá fjóra meirihluta sem hafa verið í borgarstjórn Reykjavíkur á þessu kjörtímabili þá er það eingöngu meirihluti nr. 2 (undir forustu Dags Eggertssonar með þátttöku Óskars oddvita Framsóknarflokksins) og nr. 4 (undir forustu Hönnu Birnu og með þátttöku Óskars oddvita Framsóknarflokksins) sem hafa staðið af trúmennsku og áreiðanleika að málum og unnið í sátt og samvinnu við borgarbúa og af heilindum að hagsmunum þeirra.
En það hvernig Hanna Birna talar um ársreikning borgarinnar núna minnir óþægilega mikið á fyrri kosningaslagorð Sjálfstæðisflokksins, minnir mikið á þegar Geir Haarde og Þorgerður Katrín seldu kjósendum ímynd sína sem "Traust efnahagsstjórn - þegar öllu er á botninn hvolft". Málið var það að öllu var á botninn hvolt og þegar ausið var úr þeirri fötu kom í ljós að þeirra efnahagsstjórn minni en ekki nein og þau voru í yfirhylmingarreið yfir spilltu og sjúku fjármálakerfi og sök þeirra er svo mikil í þeirri yfirhylmingu að ég skil ekki ennþá hvers vegna þau eru ekki kölluð fyrir Landsdóm.
Þess vegna finnst mér borgarbúar eiga kröfu á að vita hvernig staðan raunverulega er núna fyrir kosningarnar, hverjar eru þær skuldbindingar sem munu falla á borgarsjóð ef aðrir aðilar sem borgin er í ábyrgð fyrir munu ekki geta staðið við sínar skuldbindingar. Þá á ég sérstaklega við skuldbindingar vegna skulda Landsvirkunar og hvernig standa málin út af sölu Landsvirkunar, sölu sem var fullnustuð í tíð 1. meirihluta, í byrjun þess kjörtímabils sem nú er að enda. Þeir borgarfulltrúar sem samþykktu þann samning samkvæmt fundargerð borgarráðs 11. nóvember 2006 voru:
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Jórunn Frímannsdóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
Björn Ingi Hrafnsson.
Hver er staðan í lok kjörtímabilsins?
Er líklegt að þessi samningur skelli á okkur, okkur að óvörum eins og gerðist með Icesave? Hvernig var borgun háttað frá Landsvirkjun? Var það bara að taka yfir lífeyrisskuldbindingar? Var þessi samningur einhver díll til að byrja að koma orkuauðlindum Íslendinga til einkaaðila, aðgerð sem raunar bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hafa staðið að? Hvað ef Landsvirkjun getur ekki staðið við sínar skuldbindingar? Lenda lífeyrisskuldbindingar þá ekki hvort sem er á borginni? Ef allt fer á versta hugsanlega veg, þýðir það þá að borgin seldi Landsvirkjun gegn einhverjum skuldabréfum sem hugsanlega fæst ekkert fyrir og gegn yfirtöku lífeyrisgreiðsla sem munu koma hvort sem er koma í fangið á borginni?
Hvernig er samningurinn um söluna á Landsvirkjun? Getur verið að risastór hlutur í stærsta orkufyrirtæki Íslands hafi verið seldur fyrir spilapeninga og möndl og getur verið að sú staða komi upp að Reykjavíkurborg eigi ekkert í Landsvirkjun og engar forgangskröfur í eignir þar en standi uppi með ábyrgðir fyrir mikli stærri upphæð?
Þeir borgarfulltrúar sem skrifuðu undir samninginn um sölu á Landsvirkjun á sínum tíma verða að hlíta því að fjárhagslegt innsæi þeirra og geta til að stýra stórum fyrirtækjum eins og Reykjavíkurborg séu metnir á grundvelli stærstu og afdrifaríkustu samninga sem þeir gera.
Því spyr ég. Þegar Hanna Birna seldi Landsvirkjun fyrir fjórum árum, var það góður díll? "
Átti ekki að ræna Landsvirkjun og OR eins og símanum forðum ?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2010 | 12:57
Sumt fæst keypt en annað ekki. Sumt er ekki falt
Jón Ásgeir gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Eignirnar kyrrsettar. Búinn að reka alla sem hægt er að reka. Ekkert haldbært fé. Króaður af inni í horni. Samt hótar hann skilanefnd og formanni hennar fangelsi og lætur í veðri vaka að HANN sé fórnarlamb ofsókna, upploginna saka og að allt sé bara slúður og vitleysa. Frá upphafi til enda.
Það er ekki annað hægt en vorkenna honum. Hann á bágt. Hann er veikur maður.
![]() |
Jón Ásgeir segir Steinunni misnota dómstóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2010 | 11:25
Sókn er besta vörnin
Pálmi hótar og heitir lögsókn hverjum þeim sem bendlar hann við hrunið. Globalt.
So what ! Erum við ekki til í slaginn ? Þó fyrr hefði verið. Gott hjá skilanefnd Glitnis.
![]() |
Pálmi segir málsókn byggða á misskilningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2010 | 11:07
Lögfræðingar munu hafa nóg
að gera með að halda uppi vörnum fyrir þessa menn. Vona ég bara að menn erfi það ekki við þá löglærðu.
Hvítflibbaglæpir drepa, meiða,særa,sundra,splundra og eyðileggja. Þar er ekkert sakleysi á ferð. Margir hafa misst allt sitt eða eru á góðri leið með það. Angist og pína kvelur fórnarlömbin. Þetta skal hafa í huga.
Má ætla að margur drengurinn hafi sogast inn í hringdansinn um gullkálfinn því Það þarf sterk bein til að þola álagið sem fylgir miklum auði og halda sönsum. Margur tapaði sér alveg og vaknaði upp við vondan draum eftir hrunið. Ekki einungis þeir sjálfir, heldur og nánustu aðstandendur, makar, börn og vinir. Eini möguleikinn eins og núna er komið er að segja sannleikann, segja satt og rétt frá.Og draga ekkert undan. Það má spara sér óheyrilegan kostnað lögfræðinga með því einfalda ráði.
Ég lít lögfræðinga svipuðum augum og lækna. Þeir sinna því sem kemur inn á borð þeirra af fagmennsku og án tillits til kyns, kynþáttar , eðli áverkans eða meinsins. Skiptir engu hvort þeim líki við skjólstæðinginn eða ástæðu hjálparbeiðni. Auðvitað leynast aumingjar í öllum stéttum en þeir eru fremur undantekning heldur en hitt.
Skjótum ekki þann sem réttir öðrum hjálparhönd.
![]() |
Gæsluvarðhaldsúrskurður kærður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2010 | 13:20
Á MÓTI HVALVEIÐUM
Andstaða við hvalveiðar er alltaf að aukast í heiminum. Rökin eru mestmegnis á tilfinningalegu nótunum en líka vísindaleg. Þetta eru tignarlegar skepnur, geta orðið >130 ára og eru forvitnileg fyrir margar sakir. Falleg spendýr og greind. Þeim fer fækkandi stærstu tegundunum. Hefðbundnar veiðar fyrir innanlandsmarkað finnst mér enginn geti skipt sér af en öðru máli gegnir um stórfelldar veiðar með útflutning í huga. Ekki skal eggja óstöðugan.
Hvalaskoðun er öllu friðsamlegri og dregur inn gjaldeyri. Öllum líkar vel við slíkt.
Kannski er hægt að samræma þetta tvennt, Veiðar og Skoðun Hvala: Troðfylla hvalbátinn af túrístum sem vilja sjá blóð , sjó og garnir, fá að sitja í tunnunni í mastrinu, prufa skutulinn og síðan fá að galla sig upp og vera á skurðarplaninu með hníf.Skera húð,fitu og hold. Sjá meira blóð en í nokkurri splattermynd. Þetta gæti orðið hin besta upplifun fyrir fólk fyrir (150 $ fyrir fullorðin, 75 $ fyrir börn ) og ábatasamt fyrir Hval hf. Atvinnuljósmyndari , kokkur og sjoppueigandi, bílstjórar og leiðsögumenn, bændagistingar og minni hótel nytu góðs af. Bubbi mynd svo trúbadúrast , angurvær hvalaljóð til að koma fólki í stemmingu fyrir heimferð. Prestur veitir aflát synda eða áfallahjálp. Þið sjáið að þetta er gróðabissness !Að lokum má gera sjónvarpsþætti um skipstjórana á hvalbátunum og áhöfn þeirra, úttauguðum útgerðarmanninum og eiganda þeirra
Gamlar atvinnugreinar leggjast af, tímans rás verður ei snúið við, ár eru brúaðar og ekki sundriðið lengur , bílar í stað hrossa (ég kýs hross), vörubílar í stað hrossalestar..............ad infinitum
Hreinn ! Hugsaðu málið.
![]() |
Óvissa um hvalveiðar vegna lagafrumvarps |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2010 | 00:02
Hrokagikkur og bófi
Einstaklega óviðfelldin náungi sem lifir lúxuslífi á minn kostnað. Og þinn.
Risabónusarnir illa fengnu gerðu það að verkum að þessir menn töldu sig geta gert hvað sem er. Að þeir væru snillingar og allir aðrir fávitar. Þeir voru rándýr, við villibráð. Sjúkir menn, siðblindir og gjörsamlega trylltir af græðgisvæðingunni. Fengu aldrei nóg. Vildu allt. Strax.
Vonandi fá þeir tíma til að hugsa sitt ráð í fangelsi. Svona mjúkir og sætir kallar eiga auðvitað heima á Litla Hrauni, þar vantar stelpur.
![]() |
Skýrslutökum lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.5.2010 | 23:30
Bankaleynd og Nafnleynd !
Það birtist nafn hins ólánsama barnaníðings bæði í sjónvarpi og í dagblöðum. Hann misþyrmdi stúlkum undir lögaldri líkamlega, andlega og kynferðislega eftir að hafa laðað þær til sín á Facebook. Hann fær sinn dóm.
Hvítflibbaglæpagengið eru ekkert fínni glæpamenn. Hvítflibbaglæpir drepa og meiða fólk sem verður fyrir barðinu á þeim . Kreista sálina úr fólki . Það hefur stöðugar áhyggjur, vanlíðan og þarf að láta yfir sig ganga gjaldþrot, stórfellt eignatjón og að borga áfram ofurokurvexti til bankanna. Skuldafangelsi. Það horfði upp á ævisparnað sinn þverra, gengisfellingu og æðandi verðbólgu og allir tapa nema bófarnir.
Þessir glæðir eru mörgum sinnum verri en verknaður ólánsmannsins ofangreinda því þeir hafa nauðgað okkur öllum, endurtekið, og eru enn að .
Góðar stundir. Nú er allavega sólskin og hlýtt, vorið loksins komið. Langþráð.
![]() |
Óttast ekki að gögn hafi horfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2010 | 01:03
Ný kreppa og nýtt hrun í haust ! Viðbúin ?
Ný kreppa , annað hrun og mun dýpra mun koma í haust eftir 1. oktober 2010. Innistæðueigendur hjá bönkum geta tapað öllu sem er yfir 3 milljónum. Meira er ekki tryggt af tryggingasjóði (nema þú sért bretóni). Allar blikur og teikn eru á lofti um að svo verði.
Nú eiga fæstir 3 millur á bók , en ef þú átt það skaltu strax dreifa fénu á nokkur skyldminni.
Að vanda verður logið blákallt fram í rauðan dauðann svo LÁTIÐ EKKI BLEKKJAST eina ferðina enn .
Vinsamlegast
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2010 | 00:52
Guðlaugur Þór með allt niður um sig
GÞ er ómerkingur orða sinna, vinstri höndin veit ekki hvað hin hægri gerir, munnurinn segir ósatt og fasið allt bar vott um veikar taugar og slæma samvisku. Flöktandi augnaráð, vættar varir, litið burt frá spyrli. Allt fas manns sem er undir mikilli pressu, það duldist engum. Mútuþegar og menn sem eru óheiðarlegir og siðblindir eiga ekki erindi á þing.
GÞ er búinn að vera.
Hvaða laxveiðifélaga skyldi hann velja í ár ?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2010 | 23:18
Hvenær er skoðanakönnun réttspá ?
Ekkert, nema koma ákveðinni skoðun til skila í fjölmiðlum.
Think
![]() |
Meirihlutinn fallinn í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)