Færsluflokkur: Dægurmál

Eyjamenn ,peyjar og pysjur eru duglegt fólk

Harðduglegt og fylgið sér sem er gott. Allir muna eftir gosinu stóra í Heimaey og reyndi þá á Eyjaskeggja til hins ítrasta en þeir stóðu það af sér og munu gera það líka núna.
Áfram Eyjamenn !
mbl.is Eyjamenn taka til hendinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fangelsi eða afkynjun ?

Sum dagblöð birta nöfn gerenda og jafnvel mynd , önnur ekki. Ég tel þó til bóta að birta bæði mynd og nafn barnaníðinga sem brjóta ítrekað af sér.

Lög frá 1938 um afkynjun/vönun voru afnumin nýlega enda úrelt og afsprengi hreinræktarstefnu þess tíma. Það er vel.

Fangelsi tekur þessa einstaklinga úr umferð tímabundið en leysir ekki vandann. Því ekki að gefa þeim valkostinn fangelsi eða kemíska vönun með langverkandi lyfjum og til æviloka. Það er , meðhöndla þessa einstaklinga sem andlega sjúka . Það væri réttara og mun ódýrara fyrir samfélagið. Og áhrifaríkara.

Barnaklám telja sumir hverjir , að séu persónuréttindi og tengja það  tjáningarfrelsi. Japanir felldu nýlega lög sem bönnuðu meðal annars vörslu barnaklámefnis  (lagafrumvarp). Það væri brot á tjáningarfrelsi einstaklinga. Þarna er réttur barnsins  sem verður fyrir verknaðinum brotin. Margt er skrýtið í heimi hér.


mbl.is Fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hanna Birna, ó Hanna Birna, segðu nú satt

Já ! Svakalega kemur hún sterkt út í könnun MMR . Sjálftökuflokkurinn kaupir könnun eins og bankarnir keyptu sér AAA hjá Fitsch. Allt er falt, sérstaklega skoðanir hjá skoðanakönnunarmiðlum. En bara 30 % eru  á  öðru máli. Er það ekki gott ? En fjárhagsstaða borgarinnar við sundin blá ? Er hún í raun svona góð.  

 

Salvör Kristjana Gissurardóttir ritar þessa grein : (stytt)

Þegar upp er staðið og farið yfir þá fjóra meirihluta sem hafa verið í borgarstjórn Reykjavíkur á þessu kjörtímabili þá er það eingöngu meirihluti nr. 2 (undir forustu Dags Eggertssonar með þátttöku Óskars oddvita Framsóknarflokksins) og nr. 4 (undir forustu Hönnu Birnu og með þátttöku Óskars oddvita Framsóknarflokksins) sem hafa staðið af trúmennsku og áreiðanleika að málum og unnið í sátt og samvinnu við borgarbúa og af heilindum að hagsmunum þeirra.

 

En það hvernig Hanna Birna talar um ársreikning borgarinnar núna minnir óþægilega mikið á fyrri kosningaslagorð Sjálfstæðisflokksins, minnir mikið á þegar Geir Haarde og Þorgerður Katrín seldu kjósendum ímynd sína sem "Traust efnahagsstjórn - þegar öllu er á botninn hvolft". Málið var það að öllu var á botninn hvolt og þegar ausið var úr þeirri fötu kom í ljós að þeirra efnahagsstjórn minni en ekki nein og þau voru í yfirhylmingarreið yfir spilltu og sjúku fjármálakerfi og sök þeirra er svo mikil í þeirri yfirhylmingu að ég skil ekki  ennþá hvers vegna þau eru ekki kölluð fyrir Landsdóm

geir-og-katrin

Þess vegna finnst mér borgarbúar eiga kröfu á að vita hvernig staðan raunverulega er núna fyrir kosningarnar, hverjar eru þær skuldbindingar sem munu falla á borgarsjóð ef aðrir aðilar sem borgin er í ábyrgð fyrir munu ekki geta staðið við sínar skuldbindingar. Þá á ég sérstaklega við skuldbindingar  vegna skulda Landsvirkunar og hvernig standa málin út af sölu Landsvirkunar, sölu sem var fullnustuð í tíð 1. meirihluta, í byrjun þess kjörtímabils sem nú er að enda. Þeir borgarfulltrúar sem samþykktu þann samning samkvæmt fundargerð borgarráðs 11. nóvember 2006 voru:

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Jórunn Frímannsdóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
Björn Ingi Hrafnsson.

Hver er staðan  í lok kjörtímabilsins?
Er líklegt að þessi samningur skelli á okkur, okkur að óvörum  eins og gerðist með  Icesave? Hvernig var borgun háttað frá Landsvirkjun? Var það bara að taka yfir lífeyrisskuldbindingar? Var þessi samningur einhver díll til að byrja að koma orkuauðlindum Íslendinga til einkaaðila,  aðgerð sem raunar bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hafa staðið að? Hvað ef Landsvirkjun getur ekki staðið við sínar skuldbindingar? Lenda lífeyrisskuldbindingar þá ekki hvort sem er á borginni? Ef allt fer á versta hugsanlega veg, þýðir það þá að borgin seldi Landsvirkjun gegn einhverjum skuldabréfum sem hugsanlega fæst ekkert fyrir og gegn yfirtöku lífeyrisgreiðsla sem munu koma hvort sem er koma í fangið á borginni?

Hvernig er samningurinn um söluna á Landsvirkjun? Getur verið að risastór hlutur í stærsta orkufyrirtæki Íslands hafi verið seldur fyrir spilapeninga og möndl og getur verið að sú staða komi upp að Reykjavíkurborg eigi ekkert í Landsvirkjun og engar forgangskröfur í eignir þar en standi uppi með ábyrgðir fyrir mikli stærri upphæð?

Þeir borgarfulltrúar sem skrifuðu undir samninginn um sölu á  Landsvirkjun á sínum tíma verða að hlíta því að fjárhagslegt innsæi þeirra og geta til að stýra stórum fyrirtækjum eins og Reykjavíkurborg séu metnir á grundvelli stærstu og afdrifaríkustu samninga sem þeir gera. 

Því spyr ég. Þegar Hanna Birna seldi Landsvirkjun fyrir fjórum árum, var það góður díll?


mbl.is Meirihlutinn ánægður með Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er skortur á hjúkrunarheimilum svona mikill ?

Ég er ekki svo viss um það. Er ætlunin að hvert bæjarfélag hafi eitt eða fleiri hjúkrunarheimili ? Þau þarf einnig að manna alúðlegu og hæfu fólki. Og sjá fyrir rekstrarfé.

Þetta kemur illa heim og saman við boðaðan 40 milljarða sparnað. En...

Hvað er í raun verið að kaupa hér ? Fylgi ? Eða fá inn nýja og fleiri fasta tekjuliði   ? Hlutdeild  ríkisins virðist ekki mikil enda ætlast til að sveitarfélögin láni allt framkvæmdafé frá íbúðalánasjóði. 

"Félags- og tryggingamálaráðuneytið mun á 40 árum greiða Mosfellsbæ hlutdeild í húsaleigu vegna húsnæðis sem ígildi stofnkostnaðar. Félags- og tryggingamálaráðherra gekkst nýlega fyrir lagabreytingu sem heimilar Íbúðalánasjóði að lána sveitarfélögum fyrir öllum byggingakostnaði hjúkrunarheimila og er framkvæmdin í Mosfellsbæ byggð á þeim grunni.Níu sveitarfélög hafa átt í viðræðum við ríkið um byggingu hjúkrunarheimilis og hefur Mosfellsbær verið í forsvari fyrir þau. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við hjúkrunarheimilið hefjist nú í sumar og það verði tekið í notkun vorið 2012."

Svo eru lífeyrissjóðirnir að spandera fé félagsmanna í öryggisíbúðir sem eru bara  flopp. Eldri borgarar eru platðiir að leggja allt sitt fé í litla íbúð í háhýsi og öryggið er orðum aukið. Ef eitthvað bjátar á er hvort sem er hringt í 112 og sjúkrabíll pantaður. Fölsk fjárfesting og falskt öryggi.

Er ekki nóg komið af svindli og fúppi ! 


mbl.is Byggja hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungviði má fyrirgefa hallærisskrif

Ef til er ágalli sem eldist af fólki, þá er það að vera of ungur.

Flest allir vitkast eitthvað með árunum.


mbl.is Bubbi hraunar yfir Sindra Eldon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigert og rakið eða ....vanir menn og góð tæki

Skoðið CV/ferilskrá Álfheiðar.

Álfheiður Ingadóttir.

Hún er ekki með nein tengsl við heilbrigðisgeirann, hefur enga undirstöðuþekkingu að byggja á. Hún veit ekkert hvernig heilsugæslustöð starfar eða hvað þar fer fram.Hún veit bara hvernig það er að búa í Reykjavík þar sem þú getur skroppið til næsta sérfræðinga á stofu þegar þú finnur sting. Og ég efast líka ,að hún viti nokkuð um baslið við að halda heilsugæslu úti á landsbyggðinni starfhæfri. Afleysingafólk kemur og fer, læknisleysi plagar, langt að sækja alla þjónustu .Sjúkrabíllinn bilaður, veður vond, ófærð og bið eftir að komast til læknis.

Hún lofar þegar hún stendur framni fyrir lifandi fólki  (hrædd) en svíkur þegar hún er sest bak við valdaskrifborðið.

Það sem ég skil ekki er þetta: Hvernig geta menn látið konu , sem  hefur enga undirstöðuþekkingu á heilbrigði manna og heilbrigðisstofnunum (þ.m.t. spítalar), í té þessa valdastöðu.

Sauðkind gæti gert betur en hún. 


mbl.is Minna Álfheiði á heilsugæsluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhæf stjórn kýs sjálfa sig á ný ! Kannast við þetta

Stjórn Gildis hefur margsinnis sannað óhæfi sitt en þrásitur við stjórnarborðið. Þessarri nýjustu Excel-skjalabrellu geta þeir troðið í svartholið á sér og kveikt svo í með Zippokveikjara.

Hér duga engar Barbabrellur. Axlið ábyrgð eða þið verðið bornir út og kjöldregnir. 


mbl.is Gildi svarar Sjómannafélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að verjast eða ekki verjast.....varla spurning lengur

Auðvitað er þetta harmleikur. Fyrir okkur öll. Allir hafa tapað og sigurvegari er í rauninni engin. Hvað vinnst og hvað fer forgörðum ????  Bónusfeðgar byrjuðu vel. Flestallir voru ánægðir með Bónus og bleika grísinn á gulu plastpokunum. Síðan fór að ganga of vel of lengi. Þeir stækkuðu og stækkuðu. Færðu stöðugt út kvíarnar. Hefði allt gengið eðlilega fyrir sig, með heiðarlegum viðskiptaháttum og með hag neytenda að leiðarljósi , þá væri staðan önnur í dag. En þeir fetuðu breiða veginn og fóru halloka að sinni.

Mér finnst viss reisn í því að játa sig sigraðan, viss manndómur og visst innsæi. Það verður ekki af JÁJ tekið.En mér finnst þetta sorglegt. Allt saman.

 

PS. Hvernig getur það kostað 300 millj að verjast í slíku máli ??? Hvað skyldu margir missa vinnuna og framfæri sitt ???


mbl.is Stefnan í höndum lögmanna Jóns Ásgeirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa skal það sem réttara er

Pálmi var varaformaður stjórnar FL Group. En að halda því fram að hann hafi ekki vaðið í sjóði Glitnir er ekki trúanlegt. Höguðu sér eins og smástrákar  (götustrákar) í sælgætisbúð. Tróðu öllu í sig og á og á sem skemmstum tíma.

Kannski var hann bara vara-varaformaður FL Group. Varmenni.


mbl.is Pálmi: „Þetta er galið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bygging nýs FlibbaFangelsis í burðarliðnum.

Ónefndur velgjörðamaður (Benefactor)  hefur lagt til 20 milljarða til byggingu nýs fangelsis fyrir fína afbrotamenn sem mun reist í tengslum við Hótel Hollt í Reykjavík. Ströng öryggisgæsla verður viðhöfð:Verðir eru sérþjálfaðir þjónar Hótel Hollts, vanir umgengni við þessi mikilmenni afbrota.

  • Allir fangar / vistmenn hafa sér herbergi með hótelstandard
  • Enikennisfatnaður verða teinótt jakkaföt með silkibindi og fanganúmeri á bindisnælu og ermahnöppum.
  • Allar máltíðir verða 3.ja rétta skv matseðli Hótel Hollts hverju sinni.
  • Reykingar aðeins leyfðar  á tíma sem afmarkakast milli Kl 00-24 alla daga vikunnar.
  • Einkaþotur verða bannaðar
  • Einkabílstjóri  tilækur fyrir skemmri snattferðir, viðskiptafundi og bíóferðir.
  • Læknir og sjúkranuddari tiltækir Kl 07-23 alla daga vikunnar.
  • Einangrun í vínkjallara hússins verður beitt við reglubrotum allt að 24 Klst án dómsúrskurðar.
  • Fyrir fjölskyldufólk eru sérstakar svítur búnar Presidentialstandard.

Þar geta menn hugsað sitt ráð og bruggað nýjar ráðagerðir.

Bitra , gamla kvennafangelsið, kom til tals en þótti of "sveitó og of langt að fara".


mbl.is Kerfisbundið og skipulagt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband