Athygli hjá BBC og á forsíðu = Heimsathygli

Þetta er flott framtak hjá Jóni Gnarr. Hann rambar á að gera skemmtilega hluti og eftirminnilega.
Hluti sem vekja góða (ekki slæma) athygli ! Geri aðrir betur ef þeir geta.
Að hann geri lítið úr embættinu er píp og homofóbía , finnst mér.
mbl.is Uppátæki borgarstjórans vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins byrjunin. Svínslegt

ARION banki hefur bændur í skuldakreppu. Við munum sjá fleiri svona dæmi í fleiri greinum ef ekkert er að gert. Sveitir og byggðalög tæmast af hæfileikaríku fólki sem ekki getur staðið í skilum með okurlánin.
Landbúnaðarráðherr þarf að beita sér enn harðar gegn þessu framferði ARION banka sem er verstur.

PS
Hvað líður rannsókn á Landsbankanum ???


mbl.is Ráðherra leitar leiða til að hamla á móti þróuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Satt, bannað að fara með þýfi úr landi

Happy Annars er þetta skondin frétt , því auðvitað getur þú tryggt þig gegn þjófnaði. Tryggir SP-fjármögnun bílana ?Ekki mér vitanlega.Ef öll skilriki eru í lagi fyrir fólk og farartæki ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að fara í sumarfrí á bílnum sínum.Hann segir þetta snúast um tryggingamál og alls engin mannvonska sé að baki. „Það eru ströng ákvæði um þetta. Ef þú ferð í sumarleyfi með bílinn þinn og honum er stolið þá tekur tryggingin ekki til þess. Ef þú tapar bílnum þarftu að borga af honum samt sem áður,“ segir hann [Kjartan G. Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP Fjármögnunar.]og bætir við að það endi nú alltaf með leiðindum.Öll viðskipti við Svik&Pretti-fjármögnun virðast enda með leiðindum.Hvaða lagabókstaf vinnur lögregla eða tollur eftir þegar þeir eru virkir þátttakendur í SP-ofbeldinu ???Gaman væri ef e-r lögfróður gæfi álit sitt á málinu.
mbl.is Óheimilt að fara með bílana úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnulausar umræður um aðild að ESB

Rauðvínsmaríneraður heili sem heldur að Íslandi sé tekið fagnandi sem jafningja inn í ESB.
Við eigum ekki einu sinni atkvæði okkar á vegum SÞ, NATO og enn síður innan vébanda ESB.
Nauðbeygð og sveigð.
En hvar er stefnan ? Er það bara að komast inn hvað sem það kostar ?
Það má nefna fiskimið, veiðar úr sjó , virkjun fallvatna, orkuframleiðslu, landbúnað og afurðir, hreint lof og vatn, erlent fjármagn og eignir hérlendis, samgöngur á láði og legi, flugumferð, krónuna, ferðafrelsi, atvinnufrelsi,o.s.frv Hvergi hefur verið minnst á þessi mál.

Þessi stjórn kann bara að semja af sér.

Öfuguggastjórn. (ekki átt við kynhneigð)

ESB aðildin er Leiksýning fyrir fáa útvalda.

Er ekki komið nóg ?

PS.
Nær væri að stofnaa bandalag við Noreg-Færeyjar-Grænland/Dani. Þar liggja hagsmunir okkar


mbl.is „Verðum að reyna að ná góðum samningi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umboðsmaður umboðsmanna

Ég gef kost á mér í þetta vellaunaða starf.

Svíar hafa ógrynni umboðsmanna. Nánast einn fyrir hvern málaflokk og jafnvel einstök frávik. Við eigum enn langt í land. Við erum að koma okkur upp nýju bákni, nýjum embættismönnum, nýjum kostnaðarliðum og eftirlaunaþegum sem munu, þegar upp er staðið , binda enn einn myllustein á reiðann hjá okkur.

Ísland er of lítið fyrir þessa sýndarmennsku. Bruðl.


mbl.is Ásta skipuð umboðsmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólítískar ráðningar...

viðhalda spillingunni og nepotismanum. Við stöndum í stað og virkt lýðræði og jafnræði er ekkert.
Er annars nokkuð nýtt ?
mbl.is Vissi að Runólfur tapaði fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bendir á það sem ekki má segja

Björk Guðmundsdóttir á blaðamannafundi á Íslandi fyrir nokkrum vikumÞetta hefur ekki fengið neina umfjöllun en er rétt. Í burðarliðnum eru áform um að ná sem flestum auðlindum landsins undir sig, fá atkvæði Íslands í SÞ ( seinast sat Ísland hjá, hreint vatn eru mannréttindi) og fá ódýra orku til álframleiðslu (hergagnaiðnaður).

Við erum heimsótt af "economic hit men" sem í skjóli AGS lána þjóðum 3.ja heimsins stórar upphæðir og bíða eftir greiðsluþroti til að láta gildruna skella aftur. Skuldin er svo innheimt með ívilnunum , atkvæði tryggt hjá SÞ, aðstöðu o.s.frv. Við virðumst komin í þennann flokk að 5% þjóðarinnar hirðir auðinn en 95% strita til að halda lífi eins og í 3.ja. heiminum.

Leppar AGS seilast víða til áhrifa og virðast hafa stjórn landsins undir hælnum  eða beitir hana verulegum þvingunum. Látum ekki blekkjast, við þurfum ekki AGS og heldur ekki stórþjófótta auðmenn og auðsveigða þingmenn. 


mbl.is Björk: Magma vinnur með AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnuvélar og öryggismál

Sumir ættu ekki að setjast upp í stórvirkar vinnuvélar og stjórna þeim. Því miður eru margir haldnir drykkjusýki eða miðtaugakerfis-sjúkdómum, ss flogaveiki, sem gera það samt sem áður. Þekki vel íslenskt dæmi þar sem ágætis maður settist upp í CAT 998N . Þá var unnið að frágangi við verksmiðjuna á Grundartanga. Öflug vél, vanur maður en í miðjum klíðum fær hann flogakast og vélin rann gegnum metersþykkan, olíufylltan háspennustreng, og olli miklu tjóni. Manninum hafði verið meinuð notkun vinnuvéla eftir sprengislys sem leiddi til flogaveiki, að auki blautur, en ég tek það fram, hinn besti maður til vinnu og í umgengni.
mbl.is Varð 11 að bana með hjólaskóflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

F..k you Liz Cheney !

Ritskoðununarþvinganir. Þetta er ljótt stríð og það verður ekki fegurra af lygum og skort á upplýsingum.

mbl.is Vill loka fyrir Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrossapestin og kvefið. Af hverju er ekkert gert ??

Hrossakvefið hefur gert mörgum ræktendum hrossa skráveifu og valdið miklum búsifjum. Landsmót á Vindheimamelum féll niður, enda ekkert hægt að þjálfa veik hross og stórfé hefur tapast ef litið er til sölutekna og útflutnings.

Hrossamarkaðurinn veltir í dag milljörðum. Því spyr maður sig af hverju er ekki tekið á þessu af festu og rétt á málunum haldið ? Það stoðar lítt  að gefa penicillin , stera , berkjuvíkkandi og slímlosandi  og af handahófi eins og gert er, ef þessi sjúkdómur er ekki rannsakaður nánar. 

Hér þarf að veirugreina, taka sýni, athuga mótefni og mótefnisvaka og bólusetja ef hægt er. Þetta er ekki gert og rannsóknir stranda á að rafeindasmásjá að Keldum er biluð og  ekki fæst fé til úrbóta hjá ráðuneytinu. Þó milljarðar séu í húfi.

Nú er þetta ekkert venjulegt kvef, heldur geta hrossin fengið emphysem (blöðrur út frá loftskiptahluta lungna) sem eru óafturkræfar breytingar sem versna og hrossin verða ónýt til reiðar. Mæðin og að lokum hjartveik.  

Þetta er til skammar fyrir dýralækna, landbúnaðarráðuneyti og Keldur og bitnar hart á ræktendum hrossa og útflytjendum. 

Múll


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband