Bendir á það sem ekki má segja

Björk Guðmundsdóttir á blaðamannafundi á Íslandi fyrir nokkrum vikumÞetta hefur ekki fengið neina umfjöllun en er rétt. Í burðarliðnum eru áform um að ná sem flestum auðlindum landsins undir sig, fá atkvæði Íslands í SÞ ( seinast sat Ísland hjá, hreint vatn eru mannréttindi) og fá ódýra orku til álframleiðslu (hergagnaiðnaður).

Við erum heimsótt af "economic hit men" sem í skjóli AGS lána þjóðum 3.ja heimsins stórar upphæðir og bíða eftir greiðsluþroti til að láta gildruna skella aftur. Skuldin er svo innheimt með ívilnunum , atkvæði tryggt hjá SÞ, aðstöðu o.s.frv. Við virðumst komin í þennann flokk að 5% þjóðarinnar hirðir auðinn en 95% strita til að halda lífi eins og í 3.ja. heiminum.

Leppar AGS seilast víða til áhrifa og virðast hafa stjórn landsins undir hælnum  eða beitir hana verulegum þvingunum. Látum ekki blekkjast, við þurfum ekki AGS og heldur ekki stórþjófótta auðmenn og auðsveigða þingmenn. 


mbl.is Björk: Magma vinnur með AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband