Lögfræðingar munu hafa nóg

að gera með að halda uppi vörnum fyrir þessa menn. Vona ég bara að menn erfi það ekki við þá löglærðu.

 Hvítflibbaglæpir drepa, meiða,særa,sundra,splundra og eyðileggja. Þar er ekkert sakleysi á ferð. Margir hafa misst allt sitt eða eru á góðri leið með það. Angist og pína kvelur fórnarlömbin. Þetta skal hafa í huga.

Má ætla að margur drengurinn hafi sogast inn í hringdansinn um gullkálfinn því  Það þarf sterk bein til að þola álagið sem fylgir miklum auði og halda sönsum. Margur tapaði sér alveg og vaknaði upp við vondan draum eftir hrunið. Ekki einungis þeir sjálfir, heldur og nánustu aðstandendur, makar, börn og vinir. Eini möguleikinn eins og núna er komið er að segja sannleikann, segja satt og rétt frá.Og draga ekkert undan. Það má spara sér óheyrilegan kostnað lögfræðinga með því einfalda ráði.

Ég lít lögfræðinga svipuðum augum og lækna. Þeir sinna því sem kemur inn á borð þeirra af fagmennsku og án tillits til kyns, kynþáttar , eðli áverkans eða meinsins. Skiptir engu hvort þeim líki við skjólstæðinginn eða ástæðu hjálparbeiðni.  Auðvitað leynast aumingjar í öllum stéttum en þeir eru fremur undantekning heldur en hitt.

Skjótum ekki þann sem réttir öðrum hjálparhönd.


mbl.is Gæsluvarðhaldsúrskurður kærður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á MÓTI HVALVEIÐUM

Andstaða við hvalveiðar er alltaf að aukast í heiminum. Rökin eru mestmegnis á tilfinningalegu nótunum en líka vísindaleg. Þetta eru tignarlegar skepnur, geta orðið >130 ára og eru forvitnileg fyrir margar sakir. Falleg spendýr og greind. Þeim fer fækkandi stærstu tegundunum. Hefðbundnar veiðar fyrir innanlandsmarkað finnst mér enginn geti skipt sér af en öðru máli gegnir um stórfelldar veiðar með útflutning í huga. Ekki skal eggja óstöðugan.

Hvalaskoðun er öllu friðsamlegri og dregur inn gjaldeyri. Öllum líkar vel við slíkt.

Kannski er hægt að samræma þetta tvennt, Veiðar og Skoðun Hvala: Troðfylla hvalbátinn af túrístum sem vilja sjá blóð , sjó og garnir, fá að sitja í tunnunni í mastrinu, prufa skutulinn og síðan fá að galla sig upp og  vera á skurðarplaninu með hníf.Skera húð,fitu og hold. Sjá meira blóð en í nokkurri splattermynd. Þetta gæti orðið hin besta upplifun fyrir fólk fyrir (150 $ fyrir fullorðin, 75 $ fyrir börn ) og ábatasamt fyrir Hval hf. Atvinnuljósmyndari , kokkur og sjoppueigandi, bílstjórar og leiðsögumenn, bændagistingar og minni hótel nytu góðs af. Bubbi mynd svo trúbadúrast , angurvær hvalaljóð til að koma fólki í stemmingu fyrir heimferð. Prestur veitir aflát synda eða áfallahjálp. Þið sjáið að þetta er gróðabissness !Að lokum má gera sjónvarpsþætti um skipstjórana á hvalbátunum og áhöfn þeirra, úttauguðum útgerðarmanninum og eiganda þeirra

Gamlar atvinnugreinar leggjast af, tímans rás verður ei snúið við, ár eru brúaðar og ekki sundriðið lengur , bílar í stað hrossa (ég kýs hross), vörubílar í stað hrossalestar..............ad infinitum

Hreinn ! Hugsaðu málið.


mbl.is Óvissa um hvalveiðar vegna lagafrumvarps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrokagikkur og bófi

Einstaklega óviðfelldin náungi sem lifir lúxuslífi á minn kostnað. Og þinn.

Risabónusarnir illa fengnu gerðu það að verkum að þessir menn töldu sig geta gert hvað sem er. Að þeir væru snillingar og allir aðrir fávitar. Þeir voru rándýr, við villibráð. Sjúkir menn, siðblindir og gjörsamlega trylltir af græðgisvæðingunni. Fengu aldrei nóg. Vildu allt. Strax.

Vonandi fá þeir tíma til að hugsa sitt ráð í fangelsi. Svona mjúkir og sætir kallar eiga auðvitað heima á Litla Hrauni, þar vantar stelpur.


mbl.is Skýrslutökum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankaleynd og Nafnleynd !

Það birtist nafn hins ólánsama barnaníðings bæði í sjónvarpi og í dagblöðum. Hann misþyrmdi stúlkum undir lögaldri líkamlega, andlega og kynferðislega eftir að hafa laðað þær til sín á Facebook. Hann fær sinn dóm.

Hvítflibbaglæpagengið eru ekkert fínni glæpamenn. Hvítflibbaglæpir drepa og meiða fólk sem verður fyrir barðinu á þeim . Kreista sálina úr fólki . Það hefur stöðugar áhyggjur, vanlíðan og þarf að láta yfir sig ganga gjaldþrot, stórfellt eignatjón og að borga áfram ofurokurvexti til bankanna. Skuldafangelsi. Það horfði upp á ævisparnað sinn þverra, gengisfellingu og æðandi verðbólgu og allir tapa nema bófarnir.

Þessir glæðir eru mörgum sinnum verri en verknaður ólánsmannsins ofangreinda því þeir hafa nauðgað okkur öllum, endurtekið, og eru enn að .

Góðar stundir. Nú er allavega sólskin  og hlýtt, vorið loksins komið. Langþráð.


mbl.is Óttast ekki að gögn hafi horfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er það svart segir William Black

FRAUD=Misferli,Svik,Glæpur,Lögbrot til auðgunar.

Flokkarnir eru að hrynja. Grínframboð nýtur meiri hylli en flokkarnir. Kónarnir í flokkunum segjast ekki hafa brotið neinar reglur .Þeir hafa ekkert siðferði, segja prófkjörin svo dýr og stór að þeir þykjast eiga sín sæti eftir að hafa skilið hnífasettin eftir í flokksbræðru sínum. Kirkjur og hreppir landsins eru stórskuldug eftir brask ! - Hvers konar þjóðfélag er þetta eiginlega ?!

Ljóst er að þingmenn þiggja vald sitt frá flokknum, þar er ekkert lýðræði. Flokkarnir vilja alls ekki persónukjör, allt of lýðræðislegt. Klíku og spillingarstimpill loðir enn við flokkana og enginn reynir einu sinni að bæta ímynd þeirra. 

Brýnt er að endurskoða stjórnarskrána, en án íhlutunar flokkanna. Stjórnmálaflokkarnir munu ekki taka til innan frá enda óhæfir .

William Black lögfræðingur velkist ekki í vafa um glæpaheigð auðmanna og bankastjórnenda  Fraud

Bankarnir voru rændir innan frá og reknir í gjaldþrot, óumdeilt, enginn ber ábyrgð,umdeilt.Aðferðin sem þeir notuðu er einföld, maður undir meðalgreind getur þetta. Ársskýrslur endurskoðenda reyndist aðalvopnið. Svona var farið að skv W.Black:   1) Brjálæðislegur vöxtur (50% á níu mánuðum ár hvert)  2) Slæm og stór útlán án trygginga 3) Óhemjustór viðskiptavild ,keypt, jafnvel þegar bankarnir voru tæknilega gjaldþrota 4) Enginn varasjóður , því öllu hafði verið rænt (Ponse scheme)

Bankarnir keypti hluti í hvor öðrum og sjálfum sér, kallað weak capital=No capital ! Þeir lánuðu fólki til að kaupa hluti í bankanum (simple fraud). Stjarnfræðilegar bónusgreiðslur því þeir gátu sýnt fram á geysilegan sýndargróða=geysilegir raunbónusar.

Hefði þetta haldið áfram lengur hefði landið lagst í eyði. Nú þegar er mikill flótti til útlanda, fólk flyst ekki til landsins og þeir menntuðu munu fara .

William Black vill aðstoða þjóðina en stjórnvöld vilja ekki hans hjálp. Þau eru enn að fela, sópa yfir .

Sökin liggur hjá stjórnendum, þeir geta ekki firrt sig ábyrgð. Stjórnvöld sem klappstýrur sem gerðu lítið úr hverjum þeim sem voru á öndverðum meiði.Jafnvel eyðilagðir.

Hluti skýringar liggur eflaust í þjóðrembingi ,gullöldin, sérkenni íslendinga, við stöndum öðrum framar, yfirburðarríkið, neitað að hlusta á viðvaranir. Síðan kom hrunið og við vorum nú fórnarlömb svikula útlendinga sem sátu um landið, en allt botnar í smásálarlegri taumlausri græðgi. Megi þeir brenna í Helvíti til eilífðar.


Ný kreppa og nýtt hrun í haust ! Viðbúin ?

Ný kreppa , annað hrun og mun dýpra mun koma í haust eftir 1. oktober 2010. Innistæðueigendur hjá bönkum geta tapað öllu sem er yfir 3 milljónum. Meira er ekki tryggt af tryggingasjóði (nema þú sért bretóni). Allar blikur og teikn eru á lofti um að svo verði.
Nú eiga fæstir 3 millur á bók , en ef þú átt það skaltu strax dreifa fénu á nokkur skyldminni.

Að vanda verður logið blákallt fram í rauðan dauðann svo LÁTIÐ EKKI BLEKKJAST eina ferðina enn .

Vinsamlegast


Guðlaugur Þór með allt niður um sig

Rasskelltur af Helga Seljan í Kastljósinu. GÞ var með tilbúin svör sem hann reyndi í sífellu að skjóta inn milli spurninga. Líka þegar spurt var um annað.
GÞ er ómerkingur orða sinna, vinstri höndin veit ekki hvað hin hægri gerir, munnurinn segir ósatt og fasið allt bar vott um veikar taugar og slæma samvisku. Flöktandi augnaráð, vættar varir, litið burt frá spyrli. Allt fas manns sem er undir mikilli pressu, það duldist engum. Mútuþegar og menn sem eru óheiðarlegir og siðblindir eiga ekki erindi á þing.
GÞ er búinn að vera.
Hvaða laxveiðifélaga skyldi hann velja í ár ?

Hvenær er skoðanakönnun réttspá ?

Hún byggir á slembiúrtaki kannski 100 einstaklinga. Etv er einföldum tölfræðireglum ekki fylgt og spurningaformið leiðandi. Raunin er sú að þú getur pantað skoðanakönnun með fyrirfram gefinni niðurstöðu. Hvaða gildi hefur það ?
Ekkert, nema koma ákveðinni skoðun til skila í fjölmiðlum.
Think
mbl.is Meirihlutinn fallinn í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðvirð kona í fram(a)sókn. Hennar tími kemur

Guðrún segir, að fundi með trúnaðarmönnum flokksins nýverið hafi hún vakið að  eigin frumkvæði, máls á þeirri staðreynd að fyrirtæki, sem sé að hluta til í eigu eiginmanns hennar, sé nefnt á nafn í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þetta hafi hún gert í þeim tilgangi að fyrirbyggja misskilning í röðum Framsóknarmanna þar sem margir þeirra eru illa brenndir af spillingarumræðu fortíðar. Fyrirtækið er nefnt á nafn í skýrslunni vegna þess að fyrirtækið veitti góðfúslega upplýsingar um viðskiptin til að auðvelda Rannsóknarnefndinni störf sín. Miðbæjareignir sæta ekki opinberri rannsókn. 

Kjarni málsins er að Guðrún Valdimarsdóttir vekur máls á hagsmunaárekstri sem telst óheppilegur og er bannaður í öðrum löndum.Hún gerir grein fyrir afstöðu sinni og upplýsir skýrlega í hverju hann felst. Fyrir það hlaut hún ávítur og illt umtal og gamla skítadreifaramaskínan hrökk strax í gang að nýju. Ata mannorð, vega að æru, rægja og ófrægja.

En mér finns framkoma hennar heiðvirð. Það sama verður ekki sagt um viðbrögð gamla eignarhaldsfélag flokksins . Það væri nær að fleiri skoðuðu sinn hug og samvisku og gerðu hreint fyrir sínum dyrum. Því öll mál koma upp um síðir.

 


mbl.is Segir sig af lista Framsóknarflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljómandi gott PR, PR more PR and mostly PR

PR er PR. Það er óþarfi að agnúast út í forsetann útaf viðtölum í erlendum sjónvarpsstöðvum. Það sem hann segir er á allra vitorði, að búist er við Kötlugosi. Það er ekkifrétt. Nú ef menn gleypa við þessu hráu er það þeirra mál. Það hefur verið lenska að skjóta sendiboða illra tíðinda í þeirri von að atburðarás sögunnar endi þar með,punktur,basta. Svo er ekki.

Látið af þessu karpi um hvað forsetinn má segja eða ekki. Hann er- lifandi- þenkjandi- yfirvegaður maður. Ekki uppstoppuð brúða.


mbl.is Dýrkeypt yfirlýsing forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband