Nú er það svart segir William Black

FRAUD=Misferli,Svik,Glæpur,Lögbrot til auðgunar.

Flokkarnir eru að hrynja. Grínframboð nýtur meiri hylli en flokkarnir. Kónarnir í flokkunum segjast ekki hafa brotið neinar reglur .Þeir hafa ekkert siðferði, segja prófkjörin svo dýr og stór að þeir þykjast eiga sín sæti eftir að hafa skilið hnífasettin eftir í flokksbræðru sínum. Kirkjur og hreppir landsins eru stórskuldug eftir brask ! - Hvers konar þjóðfélag er þetta eiginlega ?!

Ljóst er að þingmenn þiggja vald sitt frá flokknum, þar er ekkert lýðræði. Flokkarnir vilja alls ekki persónukjör, allt of lýðræðislegt. Klíku og spillingarstimpill loðir enn við flokkana og enginn reynir einu sinni að bæta ímynd þeirra. 

Brýnt er að endurskoða stjórnarskrána, en án íhlutunar flokkanna. Stjórnmálaflokkarnir munu ekki taka til innan frá enda óhæfir .

William Black lögfræðingur velkist ekki í vafa um glæpaheigð auðmanna og bankastjórnenda  Fraud

Bankarnir voru rændir innan frá og reknir í gjaldþrot, óumdeilt, enginn ber ábyrgð,umdeilt.Aðferðin sem þeir notuðu er einföld, maður undir meðalgreind getur þetta. Ársskýrslur endurskoðenda reyndist aðalvopnið. Svona var farið að skv W.Black:   1) Brjálæðislegur vöxtur (50% á níu mánuðum ár hvert)  2) Slæm og stór útlán án trygginga 3) Óhemjustór viðskiptavild ,keypt, jafnvel þegar bankarnir voru tæknilega gjaldþrota 4) Enginn varasjóður , því öllu hafði verið rænt (Ponse scheme)

Bankarnir keypti hluti í hvor öðrum og sjálfum sér, kallað weak capital=No capital ! Þeir lánuðu fólki til að kaupa hluti í bankanum (simple fraud). Stjarnfræðilegar bónusgreiðslur því þeir gátu sýnt fram á geysilegan sýndargróða=geysilegir raunbónusar.

Hefði þetta haldið áfram lengur hefði landið lagst í eyði. Nú þegar er mikill flótti til útlanda, fólk flyst ekki til landsins og þeir menntuðu munu fara .

William Black vill aðstoða þjóðina en stjórnvöld vilja ekki hans hjálp. Þau eru enn að fela, sópa yfir .

Sökin liggur hjá stjórnendum, þeir geta ekki firrt sig ábyrgð. Stjórnvöld sem klappstýrur sem gerðu lítið úr hverjum þeim sem voru á öndverðum meiði.Jafnvel eyðilagðir.

Hluti skýringar liggur eflaust í þjóðrembingi ,gullöldin, sérkenni íslendinga, við stöndum öðrum framar, yfirburðarríkið, neitað að hlusta á viðvaranir. Síðan kom hrunið og við vorum nú fórnarlömb svikula útlendinga sem sátu um landið, en allt botnar í smásálarlegri taumlausri græðgi. Megi þeir brenna í Helvíti til eilífðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband