Lömuð stofnun

mönnuð lamadýrum.
Þessi stofnun hefur ekki sýnt neina tilburði til að reka af sér slyðruorðið. Frammistaða hennar er til háborinnar skammar og hefur skaðað íslenskt þjóðfélag meir en orð fá lýst. Í skjóli hennar var rænt og ruplað.
Það var líka talið að gengistryggðu lánin væru byggð á traustum grundvelli en það var öðru nær.
Þessi og aðrar stofnanir virða heldur ekki upplýsingaskylduna heldur svara öllu með skætingi og útúrsnúningi.
Slíkt þekkist hvergi annars staðar en er dæmigert fyrir bananalýðveldi.
Þessu þarf að breyta ef eitthvert traust á að myndast á þessarri stofnun.
Sennilega best að hafa erlent óháð FME því við virðumst ekki geta þetta ein og óstudd.
mbl.is FME telur lagagrundvöll gengislánatilmæla traustan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Melluskortur til sveita vandamál skv Kiljan

„Fólki er mismunað þannig að þeir sem eru með lítil  erfðagen fá betri kjör en hinir sem hafa slíkar byrðar í sálu og skrokk. Þannig er fyrir hendi mismunun segir Ögmundur, allt eftir typpastærð. Kannski hef ég misskilið fréttina og inntak hennar en hún var ekki auðskilin ehmm m.

Hvað sem öðru líður er ljótt að leggja þessa konu í einelti meðan aðrar mellur ganga óáreittar til starfa. Er það vegna þess að hún er þeldökk á skrokknum og með hrokkið hár ? Þá má líka telja til mismunun vegna kynferðis og litarhátts: Rasísmi !

Catalina Catalína

 Konur verða að geta séð sér farborða og flestar kunna til verka enda eðlislægt að sinna frumþörfunum eða hvað.

Það er nú einu sinni svo að sumir eru svo óaðlaðandi á allann hátt, að kvenfólk lítur ekki við þeim. Þessir aðilar verða þá ömurlega ófullnægðir og fúlir og vansælir yfir sínu hlutskipti.

Þá er gott að geta hringt í hana Catalinu, er mér tjáð.

Stíflulosunarþjónusta Catalinu, lítil sem stór velkomin og opið 7-11 alla daga.  Munið númerið 666 6666 !(birtist án ábyrgðar)

 


mbl.is 15 mánaða fangelsi fyrir vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur veður í svima og villu

Mynd 536095

Hann Ögmundur vill jafnræði en slíkt er ekki fyrir hendi í misskiptingu þjóðfélagsins. Þar hafa veðhlaupahestar (þingmenn) auðkýfinga, sægreifa og braskara töglin og haldirnar og eru þeir sjálfútnefndur aðall Íslands. Þetta vita allir.  Ögmundur líka.

En því talar maðurinn þá svona ? Hvað á hann við þegar hann segir : "„Fólki er mismunað þannig að þeir sem eru með lítil skaðleg erfðagen fá betri kjör en hinir sem hafa slíkar byrðar í sálu og skrokk. Þannig er fyrir hendi mismunun inni í einkavæddu kerfi. Það er því spurning hversu langt menn vilja bera þá mismunun inn í þjóðfélagið og skattkerfið,“ segir Ögmundur" Þetta hljómar eins og bull og það er hreinasta bull. Bull-bull-bull...

Heldur hann að tryggingafélögin og tryggingalæknar hafi genamengi viðskiptavina við hendina þegar tryggingar eru teknar ? Sumir taka sjúkdómatryggingu og spara smávegis á bók eða í sjóði , aðrir gera það ekki. En það er engin skylda . Jafnræðisskylda. Menn tryggja sig eftir föngum fyrir tekjumissi ef þeir veikjast, slasast eða láta lífið. Það er umtalsvert  áfall fyrir hvern mann og fjölskylduna. Þetta hefur ekkert með einkavæðingu að gera annað en að tryggingafélög eru hlutafélög og eru ekki rekin sem góðgerðastofnun heldur stefnt að hagnaði.

Ríkið er orðið ótrúlega frekt í skattheimtunni á venjulegt fólk; langveika, lasburða, fatlaða , geðsjúka, börn og gamalmenni. Fólk sem getur ekki varist. Hefur enga lobbýísta sem múta þingmönnum.

 

Nú er mál að linni

 


mbl.is Lögin stangast á um sjúkdómatryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lesið grein Þór Saari

Hann fjallar ítarlega ( ehmm) um þessi mál og hefur góðan skilning á hagfræðinni. Einnig er það slæmt að Seðlabankinn og FME taki til máls á þennan hátt , rétt eins og þessar stofnanir hefðu heilagt hlutverk að miðla málum í umboði ríkisvaldsins. Svo er ekki. Frumhlaup hið versta.

Enn verra er að aumingja stjórnin lætur þetta óátalið.Lindýr.


mbl.is Ósátt við tilmælin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gróðinn umdeildi

Efalítið má minnast á gróða hvað þetta varðar en flest sveitarfélög sitja uppi með enn meira tap eftir að hafa fjárfest í loftkastölum fjármálaspekúlanta. Kannski má reikna það tap sem gróða líka , samkvæmt alíslenskri andstæðu-formúlu.
mbl.is Stórgræddu á bólunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðing fyrir Alþingisstörfum ? Hvað næst....

Systkinin Ellen Kristjánsdóttir og Kristján Kristjánsson og...Er það sæmandi að þingmenn taki þátt í mótmælum sem beinast að stefnu Seðlabankans ? E-n vegin finnst mér það grafa undan virðingu fyrir Alþingi og lögum landsins. Sem alþingismaður er maður ekki prívatpersóna nema innan veggja heimilisins.

mbl.is Mótmælt á ný við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigert íslenskt kjaftæði

Það má setja skorður á svifflugumenn vegna reglugerðar evrópusambandsins , en rútubílstjórar mega keyra á undanþágu með fólk . Væri ekki nær að ráða fleiri bílstjóra og fara að tilmælum. þetta varðar þó öryggi fjölda manns.
mbl.is Fá undanþágu frá hvíldartímaákvæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menningarsöguleg verðmæti ?

Til hvers að kaupa það ? Til að selja auðmönnum síðar fyrir vinargreiða ?
mbl.is Telur ákvörðunina varhugaverða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópsk Reglugerð

 Það er verið að eltast við aukaatriði. Stofnanir innleiða erlendar reglugerðir til samræmingar en ef þær passa ekki eru þær þverbrotnar. Þannig er meðal annars farið með vinnuskyldu og vaktaálag heilbrigðisstarfsmanna. Tilgangurinn er oftast sýndarmennska.Svifflugmenn komast ekki strax í loftið.

Maður spyr sig hvaða tilgangi svona reglugerð þjóni áhugamönnum um svifflug. Heilu bunkarnir af eyðublöðum sem þarf að fylla út , til að geta flogið á ný, sem gekk ágætlega áður án reglugerðarinnar. Ég tel að mönnum sé annt um líf sitt og sjái til þess að fyllsta öryggis sé gætt svo lendingin verði ekki of hörð.


mbl.is Flugmóti aflýst vegna reglugerðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bindindismótið í Galtalæk ?

Ég taldi þetta fjölskylduskemmtun fyrir alla, börn, konur og kalla ! Galtalækur í Landsveit með Heklu í baksýn.
mbl.is Talsverð ölvun í Galtalæk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband