Geðveikisrugl !

Stjórnmálamenn þykjast stikkfrí.

Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson...... -Já , listinn er langur; hafa stigið trylltan dans kringum kjötkatlana og hlaðið undir sig og lagsmenn sína.  Ég hvet alla til að lesa grein Andra S. Magnasonar um hina geðveiku karlmenn landsins og hvernig þeir hafa eyðilagt öll gildi og viðmið sem teljast eðlileg.Stjórnmálaöflin saklaus. ??!!

http://www.visir.is/i-landi-hinna-klikkudu-karlmanna-/article/2010362512163

Hver og einn hugsi sig svo um hvernig við gátum látið þetta viðgangast. Jónas Kristjánsson telur okkur fifl og má vera að svo sé.


mbl.is Hrunið ekki rakið til stjórnmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyndarmál glerhallarinnar

Hvaða tímaskekkja er ferðinni hér ? Ofurlaun og leynilegir starfslokasamningar ættu að heyra fortíðinni til. En hér situr allt við sama heygarðshornið.

Er nokkur von fyrir Ísland


mbl.is Ekki upplýst um kostnað við starfslok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afnema skatta-skattleggja neysluna

Fair Tax.

Hvað sagði  Steingrímur fyrir 3 mánuðum ? Engar skattahækkanir, nú er annað hljóð í strokknum.  En kannski er það óumflýjanlegt en allir vasar og allar gullkistur hafa botn. Óstjórn og bruðl lagast ekki með auknu fé. Því er bara sóað. Fagleg vinnubrögð, agi, stjórn og stjórnsýsla er það sem þarf.

Af þeim liðum sem taldir eru upp , " Tillögur um hækkun fjármagnstekjuskatts, tekjuskatts fyrirtækja, auðlegðarskatts, erfðafjárskatts og umhverfis- og auðlindagjalds eru til skoðunar í fjármálaráðuneytinu. Þá liggja ennfremur fyrir tillögur um sérstakan bankaskatt" líst mér best á bankaskatt. Þar þarf virkilega öflugt eftirlit og sjálfsagt í raun að þeir greiði skatt af arði og umsvifum sínum.

En skattnetið er skringilega riðið. Þeir stóru sleppa en seiðin og smáfiskurinn  er veiddur af miskunnarleysi.


mbl.is Ætla að hækka skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalausar afsakanir. Óhæfur niðursetningur

Það sem ég hefði hins vegar gjarnan, eftir á að hyggja, viljað hafa gert og hefði án efa gert í lengra svari....,

Það var því alls ekki ætlun mín að afvegaleiða Ragnheiði eða þingheim, en vissulega skýrði ég ekki allt málið......

Auðvitað er ég hugsi yfir því hvort eitthvað hefði mátt gera öðruvísi.....

 

Það er ekki nóg að fara af ráðherrastól. Hvaða tiltrú hefur fólk á þessum manni ?


mbl.is Ekki kappsmál að vera ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfaginning

Gylfi hefur helst getið sér orð fyrir undirförulshátt, svarar ekki spurningum sem til hans er beint,  talar þá heldur um önnur málefni. Eða lætur mikilvæg gögn daga uppi í von um að þau gleymist. Hann er orðinn vandræðalegur að sjá og hafa í samstarfi.

Gylfi Magnússon ráðherra lét álit yfirlögmanns Seðlabankans rykfalla í skúffu. Gylfi gaf Alþingi rangar upplýsingar. Gylfi sagði Jóhönnu Sigurðardóttur ekkert .  Gylfi ber ábyrgð sem ráðherra. Undir stjórn Gylfa eru boðleiðir frosnar og hver bendir á annan. Hvers konar samstarf er þetta eiginlega ? Nema það hafi þá verið ætlunin að kría út gálgafrest nokkra mánuði. Með vitorði hinna.

Bless Gylfi


mbl.is Gylfi áfram ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það kom að því !

Endilega nokkur hringtorg og mislæg gatnamót ! Hafiði umferðaljós ?
mbl.is Hraðahindranir í Grímsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samt er ekki bólusett og bóluefnið dýrt

Um þessar mundir eru á markaði tvö bóluefni gegn þeim stofnum HPV (16/18) sem oftast valda krabbameini. Veirurnar geta einnig valdið sjaldgæfari krabbameinum og sumir stofnar þeirra (6/11) kynfæravörtum.

Greinin er góð en samt er kunnáttan ekki notuð til góðs. Þetta er ekki dýrt í raun og allir vita hvað kynfæravörtur geta verið erfiðar viðureignar. Smitast manna á milli og dreifast með léttfættu gleðifólki. Leghálskrabbamein : Hvaða kona er ekki hrædd við það ? 

 

Þessi bóluefni eru Gardasil® frá Merck and Co., Inc. og Cervarix® frá GlaxoSmith-
Kline. Gardasil® inniheldur mótefnavaka gegn HPV 6/11/16 og 18 og Cervarix®
mótefnavaka gegn HPV 16/18. Bæði bóluefnin eru ónæmisvekjandi og örugg og hafa
góða virkni til að koma í veg fyrir forstigsbreytingar leghálskrabbameins af völdum
HPV 16/18, en þær valda þessum sjúkdómi í a.m.k. 60% tilvika.

Nýlega var gefin út skýrsla á vegum sóttvarnalæknis um kostnaðarhagkvæmni þess
að hefja almenna bólusetningu hér á landi gegn HPV með það að leiðarljósi að fækka
leghálskrabbameini (Kostnaðargreining á Íslandi. Skýrsla vinnuhóps). Niðurstaða
skýrslunnar er sú að með almennri bólusetningu eins árgangs 12 ára gamalla stúlkna
megi árlega koma í veg fyrir leghálskrabbamein hjá a.m.k níu konum, tæplega tvö
dauðsföll og vinna um 17 lífsgæðavegin lífár (QALY).
Miðað við ákveðnar forsendur mun árlegur nettókostnaður bólusetningarinnar vera um
1,8 milljónir króna á hvert lífsgæðavegið lífár. Samkvæmt erlendum stöðlum virðist
bólusetningin hér á landi vera kostnaðarhagkvæm.

Er ekki bara að vinda sér í þetta ?


mbl.is Leitarstarf Krabbameinsfélagsins vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefna Stalíns

Auðvitað er ekki hægt að sleppa svona mönnum sem hafa matreitt skæruliðarétti ofan í Bin Laden.

Kviðdómur þurfti ekki umhugsun enda dæmt fyrirfram. Farsi.


mbl.is Kokkur Bin Ladens dæmdur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrg fjármálastefna

Hér halda menn að ESB muni bjarga öllu með styrkjum og lánum. Hvar er okkar fjármálastefna. ? Hún er kennslubókardæmi um hvernig fer þegar stjórn er engin og ævintýramenn og þjófahyski lætur greipar sópa.
Það vill enginn borga fyrir þjóð sem stjórnað er af óábyrgum og spilltum stjórnmálamönnum .
Slóvenar hafa kjark til að segja það opinskátt og svo eftir er tekið.
mbl.is Slóvakar neita að lána Grikkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forneskjufrumvarp Jóns

Þrengir enn meira að höftunum. Er ekkert virkt samkeppniseftirlit ? Hvernig má það vera að ein grein sé njörvuð niður , samkeppni er bönnuð og refsilögjöf beitt við brot. Þetta eru þó íslenskar afurðir.

 


mbl.is Hvetja alþingismenn til að fella frumvarpið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband