26.12.2009 | 15:46
Eftirlit hert í Leifsstöð
Enn er gapað og apað eftir bandaríkjamönnum. Nýverið var blökkumaður handtekinn í USA fyrir að kveikja í púðurkerlingu inni í flugvél. Það er nú blessað og gott, en til að viðhalda terror-terror-terror -terror-terror-terror-terror-terror-terror-terror-terror-terror-terror stiginu var fljótlega lekið til fjölmiðla að um Al Quaida skæruliða væri að ræða.Það er auðvitað alls ósannað en nú þarf engin réttarhöld því neyðarlögin gegn hryðjuverkum gera fólk varnarlaust og allir geta lent í þessarri stöðu ef þeir eru óheppnir.Ég vil minnast að áður fyrr var nú reykt í flugvélum svo ein púðurkerling skaðar ekki en þetta atvik er blásið upp til hins ítrasta af áróðursvélum NSA og Home Security. Það þarf að viðhalda ógninni til að geta takmarkað frelsi og réttindi þegnanna enn frekar.Og við spilum með eins og fífl. Góðar stundir.
Eftirlit hert í Leifsstöð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.