17.5.2010 | 11:03
TM hf. , Stoðir , FL-Group
Langur hali á eftir ungum manni sem lítur út sem fermingardrengur. Virðist jafnvel feiminn og óöruggur með sig, krosslagðar hendur og uglugleraugu. Látlaus jakkaföt og bindi , ermahnappar. Bakgrunnurinn skýjaborgir og auglýsingar. Myndin er tekin þannig að hann virðist stærri og valdsmannslegri. Ekki er allt sem sýnist.
Er þetta maður sem stelur öllu steini léttara ? Stelur frá ekkjum, einstæðingum, barnafólki, fötluðum, langveikum og andlega vanheilum ? Bankaræningi. Flugvélaræningi. Skilur eftir sig sviðna jörð, atvinnumissi og eymd ???
Þessi drengur er nú að búa sig undir heimsókn manna , sem munu banka upp á og spyrja eftir pabba . Samfélagið kostar þá heimsókn , og hinn bitra eftirleik og maður spyr sig : Hvað lagði hann til samfélagsins, hverju hefur hann afrekað, hvað hefur hann látið gott af sér leiða ? Á hann sér málsbætur ?
Bíðið og þér munuð sjá
Fer úr stjórn TM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
THví midur Árni, thegar STÓRT er spurt er fátt um svo. En thessir gaejar svara vonandi spurningum thínum fyrir helgi.
Gunnlaugur H Gunnlaugsson, 17.5.2010 kl. 11:54
Einn enn leppur hrunmeistarans Jón Ásgeirs fellur !
Gott mál, það fer að vera hægt að anda án grímu á landinu.
Birgir Örn Guðjónsson, 17.5.2010 kl. 21:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.