12.5.2010 | 14:24
Bygging nýs FlibbaFangelsis í burðarliðnum.
Ónefndur velgjörðamaður (Benefactor) hefur lagt til 20 milljarða til byggingu nýs fangelsis fyrir fína afbrotamenn sem mun reist í tengslum við Hótel Hollt í Reykjavík. Ströng öryggisgæsla verður viðhöfð:Verðir eru sérþjálfaðir þjónar Hótel Hollts, vanir umgengni við þessi mikilmenni afbrota.
- Allir fangar / vistmenn hafa sér herbergi með hótelstandard
- Enikennisfatnaður verða teinótt jakkaföt með silkibindi og fanganúmeri á bindisnælu og ermahnöppum.
- Allar máltíðir verða 3.ja rétta skv matseðli Hótel Hollts hverju sinni.
- Reykingar aðeins leyfðar á tíma sem afmarkakast milli Kl 00-24 alla daga vikunnar.
- Einkaþotur verða bannaðar
- Einkabílstjóri tilækur fyrir skemmri snattferðir, viðskiptafundi og bíóferðir.
- Læknir og sjúkranuddari tiltækir Kl 07-23 alla daga vikunnar.
- Einangrun í vínkjallara hússins verður beitt við reglubrotum allt að 24 Klst án dómsúrskurðar.
- Fyrir fjölskyldufólk eru sérstakar svítur búnar Presidentialstandard.
Þar geta menn hugsað sitt ráð og bruggað nýjar ráðagerðir.
Bitra , gamla kvennafangelsið, kom til tals en þótti of "sveitó og of langt að fara".
Kerfisbundið og skipulagt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Senda þá á elliheimili.
Hörður Halldórsson, 12.5.2010 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.