Hvenær er skoðanakönnun réttspá ?

Hún byggir á slembiúrtaki kannski 100 einstaklinga. Etv er einföldum tölfræðireglum ekki fylgt og spurningaformið leiðandi. Raunin er sú að þú getur pantað skoðanakönnun með fyrirfram gefinni niðurstöðu. Hvaða gildi hefur það ?
Ekkert, nema koma ákveðinni skoðun til skila í fjölmiðlum.
Think
mbl.is Meirihlutinn fallinn í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Ítrekaðar rannsóknir hafa sýnt að skoðanakönnun er aldrei nema vísbending um raunveruleikann.  Stundum sterk vísbending.

  Hérlendis telst skoðanakönnun varla marktæk nema lágmark 400 svari.  Vandamálið er að ef haft er samband við 600 og 400 af þeim eru tilbúnir að svara er strax komin skekkjumörk.  Hvað veldur því að þriðjungur neitar að svara?  Treystir það fólk ekki þeim sem framkvæmir könnunina?  Eða á hópurinn eitthvað annað sameiginlegt?  Er þetta fólk sem hefur ekki gert upp hug sinn en kemst síðar að líkri niðurstöðu?

  Hvernig er spurt?  Það skiptir miklu máli.  Algengt er að sá sem vill ekki svara eða segist vera óákveðinn sé spurður:  "Hvort er líklegra að þú kjósir Sjálfstæðisflokkinn eða aðra flokka?"

  Þetta er ástæðan fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn kemur iðulega betur út í skoðanakönnunum en kosningum.  VG kemur einnig iðulega betur út í könnunum en kosningum.  Það er eins og kjósendur VG séu fljótari að gera upp hug sinn en kjósendur Framsóknarflokks og Samfylkingar.  

  Annað:  Hringt er í þá sem eru með skráð símanúmer.  Lægra hlutfall af yngra fólki en eldra er með skráð númer.  Til viðbótar eru sumar stéttir meira og minna utan GSM sambands.  Til að mynda sjómenn.  Fyrir bragðið hefur Frjálslyndi flokkurinn alltaf nema 1 sinnu mælst með minna fylgi í könnunum en kosningum.

  Eitt enn (þó af ýmsu fleiru sé að taka):  Reynslan hefur sýnt að skoðanakönnunarfyrirtæki meta loðin svör ómeðvitað í hag þeim sem borgar fyrir könnunina.  Þegar Sjálfstæðisflokkurinn keypti könnun um daginn mældist Hanna Birna með næstum 70% fylgi sem borgarstjóri.  Þegar Samfylkingin lét gera könnun mældist Dagur B. með yfir 50% fylgi en Hanna Birna með 40-og-eitthvað%.  Þegar Frjálslyndi flokkurinn lét gera könnun í N-V kjördæmi mældist hann með yfir 10% fylgi.  Það reyndist langt fyrir ofan það sem kom upp úr kjörkössum. 

Jens Guð, 1.5.2010 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband