Össur á undan sinni samtíð

Fer jafnvel framúr sjálfum sér.
Hann hlýtur að fara erinda stjórnarinnar, eða hvað ?
mbl.is Össur á leið til Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttlæti !

Þetta er ekkert réttlæti.
Þetta er ekki réttsýni.
Þetta eru ólög !

Hafið kjark að láta þessar peningastofur fara á hausinn. Það þarf að hreinsa til.
Margur svartur sauðurinn þar hefur unnið heiðarlegu fólki umtalsvert tjón með ljótum aðferðum.
Dæmin tala fyrir sig.


mbl.is Gengislánin „frumskógur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er lag, nú skal höggva

Illa dulin græðgi í "grænar" auðlindir . Að e-ð sé grænt er mesta söluvara nútímans.

Málið er: Skal verðmerkja allt ? Er allt falt fyrir rétt verð ? Hvar er landverndin ? Eitt er víst að framkvæmdir kringum auðlindir eru ekki grænar. Kosta líf og limi og umhverfisspjöll.

Nú virðist lag að sækja á veiklaða stjórn landsins með gylliboðum og undirboðum og virðist sem framtíðarsýn sé þokukennd eða engin.

Ef stjórnin getur ekki haft hemil á peningaöflunum verður almenningur að gera það.

Ekki sofa á verðinum !


mbl.is Kortleggja íslenska jarðvarmaklasann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næturakstur, Ghostrider

Gott að maðurinn drapst ekki. Amen

Þessi mótorhjól eru skemmtileg tæki, kraftur og upptaka meiri en í súpersportbíl fyrir Trabantverð.


mbl.is Á 222 km hraða á Svalbarðsstrandarvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hóf í hófi ?

Hófdrykkjan er heldur flá

henni er valt að þjóna.

Hún er bara byrjun á

að breyta manni í róna.

Höfundur:Árni Helgason, Stykkishólmi f.1914                                                                                         Um höfund:Sýsluskrifari, póstmeistari og bindindisfrömuður í Stykkishólmi                                           Heimild:Vísnasafn Sigurðar J. Gíslasonar í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.


mbl.is Landaverksmiðja í Hrunamannahreppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lok efnahagslægðarinnar !

Kannski má gera þann dag að Almanaksdegi svona eins og "jafndægur" og vetrarsólstöður.

EFNAHAGSLÆGÐARLOKADAGUR

Kvensniftin virðist af álfum komin.


mbl.is Kreppulok eiga að hamla fækkun lækna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilsmetið starf og lífsnauðsynlegt er launalega vanmetið

Auðvitað er ekki alltaf verið að bjarga mannslífum, taka á móti börnum og klippa naflastrengi í kafaldsbyl og hörkugaddi. En ef slíkt gerist er mikið öryggi af nánd slökkvi og sjúkraflurningsmanna. Til lengdar þreytast menn á því að mæta alltaf afgangi í kjarasamningum og fá bara ruðurnar eða ekkert. Ekkert. Menn hætta, fara annað. Með þeim fer reynslan og þekkingin.

Þetta er fámennur hópur og við þá skal gera vel í launum. Lágmarkslaun 250 þús/mánuði.

Lögregluvarðstjórar hafa 800 Þús /mán. Er það eitthvað merkilegra starf ? Skrifstofustarf.


mbl.is Grunnlaun slökkviliðsmanna til skammar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læknismálin skömm og hneisa fyrir Fjarðarbyggð

Eskifjörður. Hér er fyrrverandi lækni gefið langt nef enda stjórnin hafin yfir lög og  dóm. Persónuleg illvild og skapbrestir látnir ráða. Með velvild ráðuneytis. Það er forkastanlegt. Brot á lögum um góða stjórnsýsluhætti.

Fyrir Hannes er þetta leiðinlegt og andlega íþyngjandi. 

Um hina lækna hef ég ekkert að segja nema að það eru góðir læknar. 


mbl.is Læknir ráðinn í Fjarðabyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísitala kaupmáttar launa ?

Ekki finnur maður mikið fyrir því, pyngjan alltaf jafn létt. Mig dreymir um daga þar sem lundin er léttari en pyngjan góða.

Hvernig er þessi vísitala annars reiknuð og hvaða breytur eru í þessari vísitölu ? Einhver sem veit ?


mbl.is Fyrsta hækkun frá janúar 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NATO misnotað

Flest aðildarríki eru löngu þreytt á langdregnum stríðum Bush og Obama í Írak og Afghanistan. Sterk öfl ráða ferðinni og vilja draga stríðið á langinn til að hámarka gróða fyrirtækja og fjárfesta. Til að ýta frekar undir það kom fyrir stuttu frétt um miklar náttúruauðlindir í Afghanistan. Frétt þessi reynist ekki-frétt. Þessar málmæðar (aðallega kopar) fundu rússar 1980 og hafa síðan verið dregnar fram í dagsljósið 2004 og 2010 til að virka eins og gulrót fyrir framan snoppuna á asnahjörð peningaaflanna.

mbl.is NATO áfram í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband